is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49181

Titill: 
  • Vörumerkjatryggð: Rannsókn á fartölvuvörumerkjum. Ánægja, traust, tregða og skuldbinding
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hraðar tækniframfarir eiga sér stað í dag, fartölvuframleiðendur keppast um að koma með nýja tækni á markað í þeirri von um að auka samkeppnisforskot sitt. Neytendur hafa fleiri valkosti þegar kemur að fartölvum sem hefur áhrif á vörumerkjatryggð þeirra við fartölvuvörumerki. Vörumerkjatryggð hefur í gegnum tíðina verið mikilvægur þáttur í markaðsfræði og er talin vera lykilþáttur í að byggja upp langtíma viðskiptasamband við viðskiptavini.
    Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áhrif ánægju, traust, tregðu og skuldbindingar á vörumerkjatryggð á fartölvuvörumerkjum. Rannsóknarspurning verkefnisins var því „Hver eru áhrif ánægju, trausts, tregðu og skuldbindingar á vörumerkjatryggð fartölvuvörumerkja?“. Til að komast að niðurstöðum var stuðst við megindlega rannsóknaraðferð. Spurningakönnun var lögð fyrir neytendur hér á landi og alls fengust 114 svör úr henni. Gögn voru greind og fjögur aðhvarfslíkön voru framkvæmd til þess að kanna áhrifaþætti breytnanna á vörumerkjatryggð.
    Niðurstöður leiddu í ljós að ánægja, traust, tregða og skuldbinding hafa allar marktæk jákvæð áhrif á vörumerkjatryggð. Skuldbinding og tregða voru áhrifaríkustu þættirnir á vörumerkjatryggð. Ánægja og traust fylgdu þar á eftir. Fyrirtæki ættu því að leggja aukna áherslu á að byggja upp skuldbindingu og auka tregðu meðal neytenda.
    Lykilorð: Vörumerki, vörumerkjatryggð, ánægja, traust, tregða, skuldbinding

  • Útdráttur er á ensku

    Rapid technological advancements are taking place today, with laptop manufacturers competing to introduce new technologies to the market in hopes of increasing their competitive edge. Consumers now have more options when it comes to laptops, which impacts their brand loyalty toward laptop brands. Brand loyalty has historically been an important factor in marketing and is considered a key element in building long-term customer relationships.
    The purpose of this study was to examine the effects of satisfaction, trust, inertia, and commitment on brand loyalty toward laptop brands. The research question for the study was, “What are the effects of satisfaction, trust, inertia, and commitment on brand loyalty toward laptop brands?”. A quantitative research method was employed to achieve the study’s objectives. A survey was conducted among consumers in Iceland, resulting in 114 responses. The data were analyzed, and four regression models were implemented to investigate the impact of the variables on brand loyalty.
    The results revealed that satisfaction, trust, inertia, and commitment all have significant positive effects on brand loyalty. Commitment and inertia were found to be the most influential factors on brand loyalty, followed by satisfaction and trust. Therefore, companies should place greater emphasis on building consumer commitment and increasing inertia among their customers.
    Keywords: Brand, brand loyalty, satisfaction, trust, inertia, commitment

Samþykkt: 
  • 17.2.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49181


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BrynjarOrnSigurdsson_BS_lokaverk.pdf887,65 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna