is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49182

Titill: 
  • Samhliða notkun sjálfsmatslistanna RAS-DS og DASS-21 : mat á árangri og bata í meðferð einstaklinga með langvinna geðsjúkdóma
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur: Eitt meginmarkmiða í heildrænni og þverfaglegri geðmeðferð er að notendur geðheilbrigðisþjónustu upplifi bata og aukin lífsgæði. Ýmsar aðferðir eru nýttar til að meta gæði, árangur og bata í geðheilbrigðisþjónustu og eru sjálfsmatslistar ein þeirra. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvort samhliða notkun sjálfsmatslistanna RAS-DS (e. Recovery and Assessment Scale - Domain and Stages) og DASS-21 (e. Depression, Anxiety and Stress scale - short form) gefi áreiðanlegar vísbendingar um árangur í meðferð einstaklinga með langvinna geðsjúkdóma sem og persónulega upplifun þeirra af bata á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru, COVID-19.
    Aðferðafræði: Rannsóknin er lýsandi, afturskyggn samanburðarrannsókn með mælingum við upphaf meðferðar, á meðan á meðferð stendur og við lok meðferðar. Fengin voru gögn úr fyrirliggjandi gagnagrunni stærri rannsóknar þar sem RAS-DS og DASS-21 hafði verið svarað yfir skilgreint meðferðartímabil, ásamt bakgrunnsupplýsingum. Þátttakendur voru í þjónustu hjá annaðhvort geðsviði Landspítala eða Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þátttakendur uppfylltu greiningarskilmerki langvinns geðsjúkdóms samkvæmt Alþjóðlega greiningarkerfinu ICD-10 (e. International Classification of Diseases) [F06.02 - F99] í tvö ár eða lengur. Gagnaöflun fór fram á árunum 2019 - 2021.
    Niðurstöður: Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu ekki marktækan mun á heildarsvörun sjálfsmatslistanna, ekki var hægt að segja til um betrun eða versnun á einkennum og bata út frá niðurstöðum sjálfsmatslistanna þegar þátttakendur voru skoðaðir sem einn hópur. Þegar þátttakendum var skipt upp í hópa eftir alvarleika einkenna kvíða annars vegar og þunglyndis hinsvegar kom fram greinilegur munur á niðurstöðum listanna bæði með tilliti til einkenna og með tilliti til upplifunar á bata og virtust einkenni minnka og upplifun á bata aukast.
    Ályktanir: Áætla má að sjálfsmatslistarnir RAS-DS og DASS-21 geti gefið áreiðanlegar vísbendingar um árangur í meðferð og persónulega upplifun einstaklinga á bata sem þiggja geðheilbrigðisþjónustu þegar meðferðarhópar og greiningarskilmerki eru afmörkuð og skýr.

  • Útdráttur er á ensku

    Aim: The focus of understanding severe mental illness (SMI) and its effects is shifting from being an illness of the mind towards a holistic approach including biological, psychological and social factors. Along with increased knowledge and understanding of SMI’s, treatments have changed. Mental healthcare is changing towards holistic and personalized treatments with emphasis on increasing quality of life, inclusion and empowerment. The aim of this research is to compare and examine effectiveness of the self-evaluation lists Recovery Assessment Scale - Domains and Stages (RAS-DS) and Depression, Anxiety and Stress - short form (DASS-21), when used together to evaluate changes in symptoms as well as personal recovery during and after treatment during times of COVID-19 global pandemic.
    Method: This is a retrospective study with a descriptive comparative design The data for this research is from a larger, pre-existing database where participants filled out DASS-21 and RAS-DS as well as background information, before, during and after mental health treatment/rehabilitation period at either Landspitali, national hospital or Akureyri hospital. Qualified participants had a pre-existing diagnosis of a severe mental illness according to ICD-10 [F00 - F98] that had been prevalent for two years or more. Data was collected during the years of 2019 - 2021.
    Results: The results did not show significant differences between factors of RAS-DS and DASS-21 as a whole group. The self-evaluation lists did therefor not show indication of neither progress nor worsening in symptoms or perceived recovery over time. However, when participants were divided into groups depending on severity of symptoms of either anxiety or depression, a significant difference was in responses. Those findings are reported and inspected more closely.
    Conclusion: The use of RAS-DS and DASS-21 shows promise in evaluating effectiveness of mental health treatment and the participant’s own experience of recovery, specifically if groups and diagnostic factors are clearly defined.

Athugasemdir: 
  • Ritgerin er lokuð til 12.02.2026
Samþykkt: 
  • 17.2.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49182


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
RASDS_DASS21_langvinnirgedsjukdomar_Sandra_Valsdottir.pdf1,99 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna