Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49217
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif starfsumhverfis og stuðnings á líðan foreldra krabbameinssjúkra barna á Íslandi. Sérstaklega var litið til þess hvort sveigjanleiki í starfi væri mismunandi milli opinbera geirans og einkageirans, hvort kyn foreldra hefði áhrif á upplifun þeirra af sveigjanleika á vinnustað og hvort sálræn aðstoð hefði áhrif á andlega líðan foreldra. Rannsóknin byggði á megindlegri aðferðafræði og gögnum sem safnað var með rafrænni spurningakönnun meðal foreldra sem skráðir voru hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna.
Ekki var marktækur munur á því hvort að foreldrar sem störfuðu í opinbera geiranum upplifðu meiri stuðning og sveigjanleika í starfi en þeir sem störfuðu í einkageiranum, þó að fjarvinna væri algengari í einkageiranum. Konur voru líklegri en karlar til að taka að sér umönnunarhlutverk og greindu frekar frá kvíða tengdum heimilisábyrgð, á meðan karlar upplifðu meiri fjárhagslega streitu. Foreldrar sem nýttu sér sálræna aðstoð mátu almennt andlega líðan sína betri en þeir sem ekki gerðu það, þó tengslin væru ekki marktæk.
Takmarkanir rannsóknarinnar, einkum lítið svarhlutfall, drógu úr alhæfingargildi niðurstaðna.Rannsóknin leggur áherslu á mikilvægi sveigjanleika á vinnustað, heildræns stuðnings og aðgengilegrar sálrænnar aðstoðar fyrir foreldra krabbameinssjúkra barna. Niðurstöðurnar eru
gagnlegar fyrir vinnuveitendur, stjórnvöld og stuðningsaðila sem vilja bæta lífsgæði þessa hóps.
The aim of this study was to examine the impact of workplace environment and support on the well-being of parents of children with cancer in Iceland. Specifically, the study investigated whether flexibility at work differs between the public and private sectors, whether gender influences parents' experiences of workplace conditions, and how psychological support affects parents' mental health. The study employed a quantitative methodology, collecting data through an electronic survey distributed to parents registered with the Icelandic Association for Children with Cancer.
There was no significant difference in whether parents working in the public sector experienced more support and flexibility at work than those working in the private sector, although teleworking was more common in the private sector. Women were more likely than men to assume caregiving responsibilities and reported greater anxiety related to household responsibilities, while men experienced more financial stress. Parents who accessed
psychological support generally reported better mental health compared to those who did not, although the relationship was not statistically significant. Limitations, particularly a low response rate, reduce the generalizability of the findings.
The study highlights the importance of workplace flexibility, comprehensive support systems, and accessible psychological services for parents of children with cancer. The findings are valuable for employers, policymakers, and support organizations aiming to improve the quality of life for this vulnerable group.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Meistaraverkefni - Rúna Sævarsdottir .pdf | 614,56 kB | Opinn | Skoða/Opna |