Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49239
The organization of turnouts for stabled horses in Iceland
Hestar eru flóttadýr sem hafa ákveðnar þarfir sem þarf að uppfylla, það er félagsskapur, fóður og frelsi til að hreyfa sig og taka ákvarðanir um ýmislegt, svo sem val á fæðu og stað til að vera á. Þegar þessar þarfir eru ekki uppfylltar koma ummerki um lélega velferð, sem getur m.a. komið fram sem árásargirni gagnvart öðrum hestum, erfiðleikar í samskiptum við fólk og húslestir. Markmið rannsóknarinnar var að skoða útivist hesta á húsi og athuga hvort hægt væri að tengja eða skoða velferð hestanna út frá því. Engin rannsókn um þetta mikilvæga mál hefur verið framkvæmd áður hér á landi. Einnig var markmiðið að afla upplýsinga sem nýtast í rannsóknir seinna meir.
Undirrituð samdi spurningar með aðstoð leiðbeinanda og fleiri og á þeim grunni var könnun send út á vef Landssambands hestamanna og á Facebook-síðu þeirra. 413 svör við henni bárust víða af landinu, bæði úr þéttbýli og dreifbýli. Því voru mikil gögn til reiðu til að vinna úr. Í u.þ.b. helmingi svaranna kom í ljós að umráðamenn skiptu hópnum upp þegar hestunum var hleypt út. Algengasta ástæðan fyrir því að gera það ekki var að hópurinn var svipaður að aldri, kyni o.fl. eða að hann var stöðugur og hestarnir þekktust allir. Hins vegar var algengasta ástæðan fyrir að skipta hópnum upp að hestarnir gátu ekki verið saman. Oftast voru 4-6 hestar saman en það passar við að algengast var að hafa 1-6 hesta í húsi. Hópasamsetningin sem var algengust var að hafa merar og geldinga saman. Meðaltími hesta úti á dag var 2,7 klst. á dag og voru flestir með hesta á húsi í 5-6 mánuði. Sú hegðun sem umráðamenn urðu oftast varir við úti í gerði var það að kljást og síðan að hestarnir voru að leika sér og hlaupa. Það sáust húslestir í 93 hesthúsum af 413 og var algengast að hestarnir væru að bíta í innréttingar og krafsa og sparka. Það var ekki marktæk tenging milli jákvæðrar hegðunar úti og húslasta en það var marktæk tenging milli neikvæðrar hegðunar úti og húslasta. Það bendir til þess að vanlíðan hestsins geti komið fram í hegðun úti. Það var ýmislegt sem hefði mátt fara betur í hönnun könnunarinnar og því var ekki hægt að skoða allt sem var vonast til að skoða. Engu að síður leiddi könnunin margt áhugavert í ljós og bíður frekari greining gagna seinni tíma.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BS-ritgerd-Hanna-24-utivist_hesta_a_husi.pdf | 1,62 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |