Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49244
Road transport contributes greatly towards greenhouse gas emissions globally and locally, and thereby contribute towards climate change. Employers are crucial actors in managing mobility by encouraging their employees to choose other modes of transport than their private car. Employers can encourage different commuting practices among their employees through strategies by utilising pull and push strategies. The aim of this thesis was to assess how medium and large sized companies in Iceland are influencing employee modes of transport through strategic management, and to compare private and public companies and institutions in this regard. Ten semi-structured interviews were conducted with representatives from six public companies and four private companies. In addition, two private companies were studied using secondary data. The results of this thesis show that the public companies place greater emphasis on implementing strategies aimed to alter employees commuting preferences compared to private companies. In addition, the results highlight that both public and private companies do not tend to implement push strategies to influence employees transport modes, such as parking fees or limited access to parking spaces, but rather they focus entirely on implementing pull strategies, this includes financial incentives, shower, dressing, and storage facilities, and access to shared mobility. From academic perspective, the results provide insights into the relationship between sectors and strategies aimed at altering employees commuting preferences, shedding light on how different governance models, that is public or private, influence corporate social responsibility efforts. In addition, the results highlight what aspects are essential to companies’ strategies and tactics that are needed to be able to fulfil their vision and mission, such as to reduce emissions and have positive influence on employees’ health.
Vegasamgöngur stuðla að mikilli losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu og staðbundið, og stuðla því að loftslagsbreytingum. Vinnuveitendur eru mikilvægir aðilar í að hafa áhrif á samgöngur með því að hvetja starfsfólk sitt til að velja annarskonar ferðamáta en einkabílinn. Vinnuveitendur geta hvatt til mismunandi ferðamáta starfsfólks með því að innleiða stefnur sem hvetja til eða hindra starfsfólk í að nota aðra ferðamáta en einkabílinn. Markmið þessarar ritgerðar er að meta hvernig stór og meðalstór fyrirtæki á Íslandi hafa áhrif á ferðamáta starfsfólks með stefnumiðaðri stjórnun og skoða hvort munur er á milli opinberra- og einkafyrirtækja í þeim efnum. Tekin voru tíu hálfstöðluð viðtöl við viðmælendur frá sex opinberum fyrirtækjum og fjórum einkafyrirtækjum. Auk þess voru tvö einkafyrirtæki skoðuð með hliðsjón af viðbótargögnum. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að opinber fyrirtæki leggja meiri áherslu á að innleiða stefnur sem miða að því að hafa áhrif á ferðamáta starfsfólks með stefnumiðaðari stjórnun fyrirtækja, en einkafyrirtæki. Auk þess benda niðurstöðurnar til þess að fyrirtækin hafa ekki tilhneigingu til að innleiða þrýstiaðferðir (e. push) til að hafa áhrif á val starfsfólks á ferðamátum, til dæmis með því að nota bílastæðagjöld og takmarka aðgang að bílastæðum, heldur einbeita þau sér alfarið að því að innleiða togaðferðir (e. pull), til að mynda með því að bjóða upp á fjárhagslega hvata, sturtuaðstöðu, búningsklefa, geymsluaðstöðu og aðgang að deilisamgöngum. Niðurstöðurnar veita dýrmæta innsýn í tengsl atvinnugeira og stefna sem miða að því að hafa áhrif á ferðamáta starfsfólks og varpa ljósi á hvernig mismunandi stjórnarhættir, það er opinberir eða einkaaðilar, hafa áhrif á áherslur á samfélagslega ábyrgð innan fyrirtækja. Niðurstöðurnar veita einnig innsýn í hvaða þættir það eru sem nauðsynlegir eru í stefnum og aðferðum fyrirtækja sem þarf til að geta uppfyllt framtíðarsýn þeirra og hlutverk, eins og að draga úr losun og að hafa jákvæð áhrif á heilsu starfsfólks.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Master thesis JSE.pdf | 1,49 MB | Lokaður til...14.06.2025 | Heildartexti | ||
Yfirlýsing JSE.pdf | 158,29 kB | Lokaður | Yfirlýsing |