is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49295

Titill: 
  • Einmanaleiki í lífi eldra fólks: Getur notkun velferðartækni breytt stöðunni?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Einmanaleiki meðal eldra fólks er vaxandi samfélagslegt vandamál sem getur haft veruleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Í þessari ritgerð er skoðað hvernig og hvort hægt sé að draga úr einmanaleika hjá eldra fólki með notkun velferðartækni. Einmanaleiki getur sprottið af félagslegri einangrun, missi ástvina eða skertri þátttöku í samfélaginu. Jafnframt hafa þjóðfélagsbreytingar og hækkandi meðalaldur aukið þrýsting á velferðarkerfið. Niðurstöður benda til þess að velferðartækni geti haft jákvæð áhrif á lífsgæði eldra fólks, en tæknin leysir ekki þann vanda sem einmanaleiki er ein og sér. Árangursrík innleiðing byggir á því að lausnirnar séu aðgengilegar, notendavænar og studdar af þjálfun og þjónustu. Mikilvægt er að tæknin verði hluti af stærri heild þar sem hún styður við – en kemur ekki í stað – mannlegra samskipta og stuðnings. Framlag ritgerðarinnar felst í því að draga fram nauðsyn þess að samþætta tæknilausnir og félagslega þjónustu í markvissri stefnumótun til að mæta fjölbreyttum þörfum eldra fólks og bæta lífsgæði þeirra á áhrifaríkan hátt.

Samþykkt: 
  • 14.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49295


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sniðmát FRG - BA ritgerð Aðalbjörg Ásgeirsdóttir.pdf634,44 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Skil á skemmuna 2.pdf789,75 kBLokaðurYfirlýsingPDF