Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49304
Tjáningarfrelsið er eitt af grunnréttindum hvers lýðræðisríkis. Felur rétturinn í sér frelsi til frjálsrar sannfæringar og er verndað af 73. gr. stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í því eru ekki einungis fólgin dýrmæt réttindi heldur eru verulegir þjóðfélagshagsmunir af því að frjáls umræða og opinber skoðanaskipti fái að dafna og þá sérstaklega sú umræða sem lýtur að stofnunum samfélagsins og vettvangi stjórnmálanna. Við afmörkun á tjáningarfrelsinu og mörkum þess kemur þó óneitanlega upp sú spurning hvenær takmarka megi rétt til tjáningar og þá einkum þegar um er að ræða hluti sem leynt eiga að fara. Í ritgerð þessari verður farið ýtarlega yfir þær trúnaðar og hollustuskyldur er opinberum starfsmönnum ber að hafa í huga samkvæmt 1. mgr. 14.gr. starfsmannalaga, þær takmarkanir sem þagnarskylda stjórnsýslulaga setur samkvæmt X. kafla stjórnsýslulaga og jafnframt skilyrði áminningar samkvæmt 21. gr. starfsmannalaga. Auk þess verður farið stuttlega yfir það hvað felst í því að vera opinber starfsmaður og hverjir falla þar undir. Opinberir starfsmenn hafa á hendi sinni eðli málsins samkvæmt upplýsingar sem eru ekki á almannafæri. Þeim eru falin mörg mikilvæg hlutverk til almannaheilla og meðal þeirra hlutverka er án efa lögregluvaldið. Lögreglan hefur meðal annars vegna valdbeitingarheimilda sem þeim er falið með lögum, margt á þeirra könnu sem sanngjarnt er að leynt fari. Í ritgerð þessari verður sérstaklega litið til tjáningarfrelsis starfsfólks lögreglunnar, takmarkanir þar á og hvar mörkin liggja á milli þagnarskyldu lögreglustéttarinnar og tjáningarfrelsis. Jafnframt verður kannað starfsreglur lögreglustéttarinnar svo sem framkvæmd á eftirliti á sviði lögreglunnar og hvenær gerðar eru auknar kröfur til vammleysis. Síðan verður vikið stuttlega að tjáningu lögreglumanna eða annara starfsmanna lögreglu við fjölmiðla og hvenær þeim sé heimilt að tjá sig eður ei og þar að auki verður vikið að persónuverndarstefnu lögreglunnar. Að lokum verður komist að niðurstöðu um hvort að tjáningu starfsfólks lögreglu séu settar þrengri skorður en tjáningu annarra opinberra starfsmanna og að hvaða leyti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð BGJ Tjáningarfrelsi Opinberra Starfsmanna Lokaskjal.pdf | 484,72 kB | Lokaður til...14.06.2025 | Heildartexti | ||
299ec5df-b375-4ef3-ae26-2320fbb792fc.jpg | 134,96 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |