Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49305
Einmanaleiki meðal eldri borgara er alvarlegt lýðheilsuvandamál sem getur haft víðtæk áhrif á líkamlega, andlega og félagslega heilsu. Í þessari ritgerð er leitast við að svara rannsóknarspurningunni: Hverjir eru helstu áhrifaþættir einmanaleika hjá eldra fólki og hvaða úrræði og aðgerðir geta unnið gegn þeim? Rannsóknin byggir á greiningu fræðilegra heimilda, kenninga og opinberra stefnumarkana. Lögð er áhersla á að skoða einmanaleika í ljósi öldrunarkenninga, s.s. hlutverkakenningarinnar, athafnakenningarinnar og samfellukenningarinnar, sem varpa ljósi á hvernig breytingar á félagslegum hlutverkum, virkni og tengslum geta haft áhrif á upplifun einmanaleika. Niðurstöður benda til þess að einmanaleiki sé afleiðing fjölmargra þátta, þar á meðal félagslegrar einangrunar, skertrar heilsu, missis, tekjulægðar og skorts á félagslegri þátttöku. Sérstök áhætta virðist vera til staðar hjá þeim sem búa einir, eiga erfitt með að nýta tæknilausnir eða hafa skerta færni. Íslensk sveitarfélög og félagasamtök hafa unnið að því að bregðast við þessum vanda með ýmsum úrræðum, svo sem félagsstarfi, heimsóknarþjónustu og heilsueflingu, en skortur á samræmingu, fjármagni og aðgengi dregur stundum úr áhrifum þeirra.
Í ritgerðinni er lögð áhersla á að samvinna ríkis, sveitarfélaga, frjálsra félagasamtaka og eldra fólks sjálfs sé lykilatriði til að takast á við einmanaleika með markvissum og notendamiðuðum aðgerðum. Áskoranir og tækifæri eru greind í ljósi íslensks velferðarsamfélags og bent á nauðsyn þess að efla kerfisbundna og heildræna stefnu gegn félagslegri einangrun eldra fólks.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
FRG261L_thorbjorg_thg80.pdf | 472,58 kB | Lokaður til...14.06.2025 | Heildartexti | ||
Yfirlysing_lokaverkefni_Thorbjorg Gisladottir.pdf | 305,73 kB | Lokaður | Yfirlýsing |