Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49327
Inngangur: Heilbrigðiskerfið stendur fyrir ýmsum áskorunum vegna öldrun þjóðarinnar. Tilfærsla verkefna milli stétta er mikilvæg til að styðja við aukið álag í heilbrigðiskerfinu og nýta þarf lyfjafræðinga í apótekum betur. Víða erlendis hefur starfssvið lyfjafræðinga í apótekum útvíkkað og færst í áttina að aukinni lyfjafræðilegri þjónustu. Lyfjafræðileg þjónusta, sem breytileg er á milli landa, hefur stutt við heilbrigðiskerfi erlendis en er nánast engin á Íslandi.
Markmið: Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf leyfishafa á Íslandi til aukinnar lyfjafræðilegrar þjónustu í apótekum. Að auki var stefnt að því að leita svara við því hver helstu tækifæri og áskoranir eru fyrir ákveðnar lyfjafræðilegar þjónustur sem huga þarf að við innleiðingu þeirra.
Aðferð: Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við meginlega rannsóknaraðferð. Spurningalisti var sendur með tölvupósti á alla starfandi lyfsala á landinu. Spurningalistinn var samsettur úr lokuðum spurningum og hálf-opnum spurningum. Excel var notað við greiningu gagna.
Niðurstöður: Svarhlutfall var 61 – 67% eftir hlutum spurningalistans. Niðurstöður sýna að lyfsalar eru líklegir til að innleiða lyfjafræðilegar þjónustur í apótekin sín. Helstu tækifæri sem lyfsalar sjá fyrir sér er að auka ánægju skjólstæðinga með því að veita aukna þjónustu. Áskorandi þættir voru helst tímaskortur lyfjafræðinga, skortur á tölvukerfi eða á aðgangi að miðlægu lyfjakorti og skortur á hæfni/þekkingu lyfjafræðinga til að veita þjónustuna.
Ályktanir: Niðurstöður benda til að lyfsalar eru jákvæðir gagnvart innleiðingu á lyfjafræðilegum þjónustum og varpa einnig ljósi á þau tækifæri og áskoranir sem fyrir hendi eru. Margt bendir til þess að nýta þurfi lyfjafræðinga betur til að takast á við þær áskoranir sem fyrir hendi eru í heilbrigðiskerfinu.
Introduction: The healthcare system is facing various challenges due to the aging population. Task shifting between healthcare professionals is essential to support overloaded services, and community pharmacists need to be utilized more effectively. In countries abroad, the role of pharmacists has expanded and shifted toward providing pharmaceutical services. Pharmaceutical services – which vary between countries have been shown to support healthcare systems, but are nearly non-existent in Iceland.
Objective: The objective of the study was to illuminate Icelandic pharmacist‘s perspectives toward enhanced and extended pharmaceutical services in community pharmacies. Additionally, the study aimed to identify the main opportunities and challenges associated with the implementation of the services.
Method: A quantitative research method was used for the study. A questionnaire was emailed to all community pharmacists in Iceland. The questionnaire consisted of both closed-ended and semi-open multiple-choice questions. Data was analyzed using Microsoft Excel.
Results: The response rate ranged from 61% to 67%, depending on the question section. The results indicate that community pharmacists are likely to implement pharmaceutical services in their pharmacies. The main opportunities identified by participants included enhanced services and increased customer satisfaction. Key challenges were primarily lack of time among pharmacists, lack of adequate computer systems, and insufficient knowledge among pharmacists to deliver the services.
Conclusion: The results suggest that community pharmacists have a positive attitude toward implementing pharmaceutical services and demonstrate the existing opportunities and challenges. The results also point to the need for better utilization of community pharmacists to help address the current challenges in the healthcare system in Iceland.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð - Brynjar Atli Bragason 15.04.25.pdf | 2,41 MB | Lokaður til...31.12.2027 | Heildartexti | ||
Yfirlysing Brynjar.pdf | 178,55 kB | Lokaður | Yfirlýsing |