is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49331

Titill: 
  • Skaðaminnkandi hugmyndafræði: Skaðaminnkun - áhrif á heildina
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi BA-ritgerð fjallar um skaðaminnkandi hugmyndafræði (e. harm reduction) og hvernig hún birtist í stefnumótun, þjónustu og meðferð einstaklinga með vímuefnaröskun, með sérstakri áherslu á ópíóíða neyslu á Íslandi. Skaðaminnkun er nálgun sem miðar að því að draga úr skaðlegum afleiðingum vímuefnaneyslu án þess að krefjast þess að einstaklingar hætti algerlega neyslu (Heilbrigðisráðuneytið, 2025). Markmið ritgerðarinnar er að greina helstu kosti og galla skaðaminnkunar, meta hvernig íslensk heilbrigðis- og félagsþjónusta innleiðir slíka nálgun í starfsemi sína og kanna hversu vel hún samræmist alþjóðlegum viðmiðum og rannsóknum á árangursríkum úrræðum fyrir einstaklinga með vímuefnaröskun. Ritgerðin byggir á fræðilegri heimildagreiningu þar sem fjallað er um þróun skaðaminnkunar í alþjóðlegu samhengi, áhrif hennar á lýðheilsu og félagslega velferð, sem og samfélagslega umræðu. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvernig viðhalds- og fráhvarfs meðferð eru útfærðar á Íslandi, hvernig skaðaminnkun hefur verið innleidd í heilbrigðis- og félagskerfið og hvaða áskoranir fylgja því að móta stefnu sem byggir á þessari nálgun. Jafnframt er rýnt í gagnrýni á skaðaminnkun, bæði frá fagfólki og almenningi, þar sem rökin snúast gjarnan um siðferðileg og samfélagsleg álitamál.
    Helstu niðurstöður benda til þess að skaðaminnkun hafi fjölbreytt kosti, meðal annars með því að draga úr blóðbornum smitsjúkdómum, ofskömmtunar tilfellum og félagslegri einangrun einstaklinga með vímuefnaröskun. Þrátt fyrir þessa kosti hefur skaðaminnkun einnig verið umdeild og mætir andstöðu í sumum samfélagslegum og pólitískum umræðum, sérstaklega þegar kemur að því hvort hún hvetji til frekari neyslu eða gangi gegn hefðbundnum bindindis miðuðum meðferðarleiðum. Á Íslandi hefur skaðaminnkun verið aukið viðfangsefni í stefnumótun síðustu ár, en enn má sjá togstreitu milli hefðbundinna bindindismiðaðra úrræða og nútímalegri skaðaminnkunar úrræða. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að stefnumótun og þjónusta byggist á gagnreyndum aðferðum sem taka mið af fjölbreyttum þörfum einstaklinga með vímuefnaröskun. Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir áskorunum í að samræma stefnu og þjónustu við alþjóðlega viðurkenndar nálganir í skaðaminnkun, en þróunin bendir til aukinnar viðurkenningar á slíkum úrræðum á komandi árum.

Samþykkt: 
  • 15.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49331


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ba-ritgerð_Andrea_aos33.pdf1,16 MBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Lokaverkefni.pdf1,01 MBLokaðurYfirlýsingPDF