is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49336

Titill: 
  • Lífsgæði og sjálfræði eldra fólks: Samanburður á stuðningsþjónustu og búsetu á hjúkrunarheimili
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Með hækkandi lífaldri hefur þörfin fyrir fjölbreytt þjónustuúrræði fyrir eldra fólk aukist. Opinber stefna á Íslandi miðar að því að eldri borgarar geti búið sem lengst heima, en þróun stuðningsþjónustu hefur ekki haldist í hendur við aukna þjónustuþörf. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvað felst í að búa heima með stuðningi eða hins vegar á hjúkrunarheimili og hvernig þessir mismunandi þjónustuúrræði hafa áhrif á lífsgæði og sjálfræði eldra fólks. Skoðaðar verða fyrri rannsóknir og fyrirliggjandi þekking á öldrunarsviði til þess að fá sýn á hvaða áskoranir og tækifæri felast í öldrunarþjónustu. Einnig verður skoðað hvernig núverandi staða í öldrunarmálum er hér á landi og borið saman við Norðurlöndin til þess að sjá hvort það megi draga lærdóm út frá þeirra kerfum. Niðurstöður sýna að stuðningur heim eykur sjálfræði, hlutverk og virkni. Ef þjónustuþörf er mikil getur stuðningurinn sem býðst reynst ófullnægjandi. Búseta á hjúkrunarheimili býður upp á öryggi og heildstæða þjónustu sem er allan sólarhringinn, en getur jafnframt dregið úr sjálfstæði og dýpkað tilfinningu fyrir hlutverkamissi og félagslegri fjarlægð. Rannsóknir benda til að eldra folk sem kýs að búa í umhverfi sem styður við þarfir þess þá aukist lífsgæði sérstaklega ef fólk heldur í hlutverk, venjur og tengsl sem skipta þau máli. Það að halda í sjálfræði er mikilvægur þáttur fyrir eldra fólk og yngra fólk, að hafa tækifæri til taka eigin ákvarðanir og viðhalda stjórn á eigin lífi. Ljóst er að framtíðarþróun öldrunarþjónustu þarf að byggja á samþættingu þjónustustiga, velferðartækni og notendamiðaðri nálgun sem tekur mið af þörfum, vilja og mannlegri reisn eldra fólks.

Samþykkt: 
  • 15.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49336


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA ritgerð - BjarkiogRakel.pdf530,22 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Adobe Scan 15 Apr 2025 (2).pdf303,27 kBLokaðurYfirlýsingPDF