Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/49342
Ritgerð þessi fjallar um ofbeldi og áreitni gagnvart starfsfólki í velferðarþjónustu með áherslu á félagsráðgjafa. Ofbeldi á vinnustöðum er alþjóðlegt vandamál sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir starfsfólk og vinnustaðarmenningu. Markmið ritgerðarinnar er að veita fræðilegt yfirlit yfir umfang og eðli ofbeldis frá skjólstæðingum og greina áhrif þess á starfsfólk og starfsaðstæður. Fjallað er um helstu áhættuþætti, birtingarmyndir og afleiðingar ofbeldis, bæði líkamlegar og andlegar. Sérstök áhersla er lögð á að skoða íslenskan veruleika auk þess sem staðan er skoðuð á hinum Norðurlöndunum og hvernig gagnreyndar aðferðir, velferðartækni og verklag geta stuðlað að auknu öryggi starfsfólks. Ritgerðin byggir á innlendum og erlendum rannsóknum, opinberum gögnum, lögum og reglum. Rannsóknarspurningarnar sem unnið er með í ritgerðinni er ætlað að varpa ljósi á vandann sem ofbeldi á vinnustöðum er, hvernig unnt sé að fyrirbyggja ofbeldi og styðja við starfsfólk í velferðarþjónustu með markvissum aðgerðum og stefnumótun.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
BAritgerð_25_irr9_og_agf7.pdf | 535,05 kB | Locked Until...2025/06/14 | Complete Text | ||
yfirlysing_skemman.pdf | 326,29 kB | Locked | Declaration of Access |