Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49354
Tilgangur þessarar ritgerðar er að beina ljósi að og auka skilning á félagslegum áskorunum sem alþjóðlegir nemendur þurfa að takast á við í háskóla ásamt því að sýna fram á mikilvægi frekari rannsókna á Íslandi. Leitast verður við að svara tveimur rannsóknarspurningum: 1) Hverjar eru helstu félagslegu áskoranirnar sem alþjóðlegir nemendur standa frammi fyrir í háskólanámi? 2) Hvað má læra af reynslu þeirra nemenda sem ekki hafa náð að samþættast í háskólasamfélagi? Mikil aukning hefur verið á fólksflutningum í heiminum undanfarin ár sem hefur haft áhrif á samfélög og stefnur innan þeirra. Tölur um fjölda alþjóðlegra nemenda hafa einnig farið hækkandi á Íslandi sem og erlendis sem hefur ýtt undir aukna vitund háskóla um mikilvægi rannsókna tengdar þessum hópi. Í ritgerðinni verður fjallað um nokkrar rannsóknir sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á félagslegar áskoranir sem alþjóðlegir nemendur standa frammi fyrir. Niðurstöður slíkra rannsókna sýna fram á algengi vandamála sem koma upp hjá þessum nemendahópi og skort á stuðningi frá háskólum. Þær gefa einnig til kynna hvaða afleiðingar þessar áskoranir geta haft á andlega heilsu alþjóðlegra nemenda og koma með tillögur um stuðning eða úrbætur sem þörf er á til viðbótar við núverandi úrræði. Hérlendis hefur þessi nemendahópur lítið sem ekkert verið rannsakaður. Með auknum fjölda erlendra nemenda og annarra innflytjenda er enn meiri þörf fyrir frekari rannsóknir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Félagslegar áskoranir alþjóðlega nemenda í háskólum.pdf | 960,86 kB | Lokaður til...14.06.2025 | Heildartexti | ||
yfirlýsing ritgerðar.pdf | 167,71 kB | Lokaður | Yfirlýsing |