is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49377

Titill: 
  • Stórhátíð neysluhyggjunnar. Afleiðingar óhóflegrar neyslu á jólunum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Höfundur: 
Útdráttur: 
  • Eftirfarandi heimildaritgerð er lokaverkefni til BA-gráðu Í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og fjallar um áhrifaþætti óhóflegrar neyslu á jólahátíðinni og afleiðingarnar sem hún hefur í för með sér. Neysla hefur aukist verulega á síðustu áratugum og með henni fylgja margvíslegar áskoranir: fjárhagslegar, sálrænar, líkamlegar og umhverfislegar. Þetta er sérstaklega áberandi á jólahátíðinni, þar sem væntingar og félagslegur þrýstingur leiðir til aukinnar neyslu og streitu. Markmið ritgerðarinnar er að varpa ljósi á hvaða afleiðingar óhófleg neysla hefur fyrir einstaklinga og samfélög. Félagsráðgjafar geta spornað gegn neikvæðum afleiðingum óhóflegrar neyslu með tveimur aðferðum: auknu fjármálalæsi og grænni félagsráðgjöf. Fjármálalæsi hjálpar fólki að auka skilning á eigin neysluhegðun og stuðlar að sjálfstjórn og fjárhagslegu öryggi. Græn félagsráðgjöf tengir félagslega og vistfræðilega velferð og veitir einstaklingum tæki og tól til að lifa sjálfbærara lífi. Niðurstöður benda til þess að jólin þurfa ekki að vera neysluhátíðin sem hún er í dag, heldur má leggja meiri áherslu á sjálfbærni og grunngildi jóla: kærleika og samveru.

Samþykkt: 
  • 16.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49377


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
vko3_Vala_Lokaritgerð.pdf369,89 kBLokaður til...24.06.2025HeildartextiPDF
Yfirlýsing.pdf4,46 MBLokaðurYfirlýsingPDF