Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49378
Ritgerð þessi fjallar um tengslamyndun mæðra með vímuefnaröskun við börn sín og leitast við að varpa ljósi á hvaða úrræði og stuðningur er til staðar til að vernda þessi tengsl. Vímuefnaröskun hefur veruleg áhrif á líf einstaklinga og nánustu aðstandendur. Þegar móðir glímir við vímuefnaröskun verður staðan sérstaklega viðkvæm þar sem foreldrahlutverkið krefst stöðugleika og ábyrgðar sem oft er erfitt að viðhalda samhliða neyslu. Ritgerðin er fræðileg samantekt þar sem unnið var með fyrirliggjandi gögn til þess að ná tilsettum markmiðum til að svara rannsóknarspurningunni: Hvaða úrræði eru til að vernda tengslamyndun mæðra með vímuefnaröskun við börn þeirra? Niðurstöður benda til þess að konur sem glíma við vímuefnaröskun mæti fjölmörgum hindrunum í aðgengi að meðferð og stuðningi svo sem fordómum, ótta og skorti á sértækum úrræðum sem taka mið af móðurhlutverkinu. Sérstaklega er skortur á áfangaheimilum þar sem konur geta verið með börn sín og fengið samþætta þjónustu sem styður bæði bataferli og tengslamyndun. Einnig er lögð áhersla á mikilvægi hlutverks félagsráðgjafa í samþættingu þjónustu og valdeflingu mæðra. Þörf er á að efla samfelld og fjölbreytt úrræði sem bjóða konum með vímuefnaröskun raunhæfan bata og styðja við örugg tengsl við börn þeirra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð_hea47_mie8.pdf | 503,31 kB | Lokaður til...14.06.2025 | Heildartexti | ||
Yfirlýsing.pdf | 102,48 kB | Lokaður | Yfirlýsing |