is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49550

Titill: 
  • Að eiga ungling með átröskun: Áhrif á foreldra og stuðningur við þá
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Átraskanir (e. eating disorders) eru alvarlegir sjúkdómar sem hafa mikil áhrif á líf einstaklinga sem glíma við þá. Unglingar eru í aukinni áhættu á að þróa með sér átraskanir, en um 14% unglinga á Íslandi glíma við átraskanir. Sjúkdómurinn hefur ekki eingöngu áhrif á unglinginn sem glímir við hann, heldur hefur hann einnig djúpstæð áhrif á foreldra. Foreldrar gegna mikilvægu hlutverki í bataferli ungmennisins og mikilvægt er að styðja við bakið á þeim í bataferli unglingsins. Markmið ritgerðarinnar er að svara rannsóknarspurningunum: Hvaða áhrif hafa átraskanir unglinga á foreldra þeirra? og Hvernig nýtist foreldrafræðsla sem inngrip við átröskunum ungmenna? Ritgerðin er fræðileg þar sem stuðst er við fyrri rannsóknir og fræðilegar greinar um átraskanir ungmenna, inngrip og úrræði, áhrif átraskana á foreldra og foreldrafræðslu. Niðurstöður sýna að átraskanir geta haft djúpstæð áhrif á líf foreldra unglinga sem glíma við átröskun, það er því mikilvægt að þau fái stuðning. Stuðningur við foreldra með notkun foreldrafræðslu er mikilvægur hluti af bataferli unglings sem glímir við átröskun, þar sem hann getur haft jákvæð áhrif á batann. Hér á landi er þó skortur á stuðningi við foreldra. Niðurstöður benda því til þess að mikilvægt sé að auka þjónustu og stuðning við foreldra á Íslandi.

Samþykkt: 
  • 28.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49550


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-ritgerð Ása Katrín Jónsdóttir.pdf718,48 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Skemman yfirlýsing Ása Katrín.pdf296,99 kBLokaðurYfirlýsingPDF