Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49580
Í þessari ritgerð verður skoðað hvaða breytingar voru á franska konungsríkinu á tímum Hundrað ára stríðsins. Var það stríðið sjálft sem hafði áhrif á þróun ríkisins eða var það eitthvað sem var nú þegar að gerast og stríðið hafði engin áhrif á það. Var byrjaður að mótast grunnur fyrir þjóðríki í Frakklandi? Ef svo var hvað var það sem breyttist í Frakklandi í stríðinu þannig að það breyttist frá miðalda lénsveldis konungsríkis og hvaða rök eru fyrir því að grunnur þjóðríkis hafi myndast.
Ritgerðin skiptist í fimm megin kafla ásamt niðurstöðum. Fjallað er um hvernig staðan var í Frakklandi áður en stríðið hófst. Lít ég yfir hvort völd frönsku krúnunnar voru mikil á þessum tíma eða lítil. Skoðuð er þróun Hundrað ára stríðsins. Aðallinn og tengsl þess við krúnuna, löggjafarvald, þróun hernaðar og að lokum skattheimta er einnig skoðað í ritgerðinni.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA ritgerð Hundrað ára stríðið - Þór.pdf | 632,59 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| BALokaverkefni Yfirlýsing Þór Guðnason.pdf | 180,51 kB | Lokaður | Yfirlýsing |