is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49585

Titill: 
  • „Þorpið er borg, stórborg“: Framsetning veruleikans í Sóleyjarsögu eftir Elías Mar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er skrifuð sem lokaverkefni til BA-prófs í íslensku frá Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er sjónum beint að því hvernig veruleiki samtímans á eftirstríðsárunum í Reykjavík birtist í bókinni Sóleyjarsögu eftir Elías Mar. Bókin kom út í tveimur hlutum, sá fyrri kom út árið 1954 og seinni hlutinn ekki fyrr en fimm árum síðar, 1959. Á þeim tíma gekk Reykjavík í gegnum miklar og hraðar breytingar, auk þess sem hernám, húsnæðisvandi og fátækt settu svip sinn á líf margra borgarbúa. Elías Mar hafði það að markmiði að framsetja veruleika Reykvíkinga í verkum sínum. Í þessu samhengi notaði hann hugtakið „aktúel skáldverk“, og meinti með því að í verkunum væri tekist á við samtímaleg málefni og aðstæður. Þetta má sjá nokkuð vel í Sóleyjarsögu. Við skoðun á framsetningu veruleikans í Sóleyjarsögu er stuðst við hugtakið mimesis, sem vísar til slíkrar framsetningar. Þetta er gert með hliðsjón af hugtaki Elíasar, „aktúel skáldverk“. Greiningin á verkinu leiðir í ljós að mimesis birtist einkum á tvo vegu í verkinu. Annars vegar má sjá dæmi um þá tegund mimesis sem einblínir á svokallaða ytri þætti, þ.e. sem móta samfélagið hverju sinni. Í tilfelli Sóleyjarsögu eru það þættir eins og herseta og fátækt sem leiðir af sér húsnæðisvanda. Hins vegar eru einnig dæmi um aðra tegund mimesis, sem er áberandi í verkum módernískra rithöfunda, sem leggur áherslu á innra líf fólks, vitundarferli þess og tilfinningar. Elías setur fram þessi atriði í verkinu og líkir þannig eftir veruleika samtímans.

Samþykkt: 
  • 29.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49585


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA-ritgerð Diljá Böðvarsdóttir2025.pdf451,27 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Yfirlýsing DB.pdf8,6 MBLokaðurYfirlýsingPDF