Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49653
Fæðing barns er í flestum tilfellum gleðileg stund fyrir verðandi foreldra. Hins vegar geta barneignir leitt til mögulegra breytinga sem geta aukið líkur á þróun fæðingarþunglyndis. Fæðingarþunglyndi mæðra er mun algengara en margir gera sér grein fyrir og getur haft veruleg áhrif á fjölskyldulífið næstu vikur og mánuði eftir fæðingu barnsins. Helstu niðurstöður sýndu að fæðingarþunglyndi er alvarlegt geðheilsuvandamál sem hrjáir eina af hverjum tíu konum í heiminum. Andleg vanlíðan móður getur haft alvarleg áhrif á tengslamyndun, sem er afar mikilvæg fyrir barnið á fyrstu árum þess. Mæður sem glíma við fæðingarþunglyndi eiga oft erfitt með að mæta grunnþörfum barna sinna, sem getur haft neikvæð áhrif á þroska barnsins. Tilgangur þessarar rannsóknarritgerðar var að kanna helstu áhættuþætti, áhrif og afleiðingar fæðingarþunglyndis, með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á hvernig það hefur áhrif á örugga tengslamyndun milli móður og barns.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Fæðingarþunglyndi og tengslamyndun móður og barns.pdf | 287,57 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman-yfirlýsing.pdf | 2,22 MB | Lokaður | Yfirlýsing |