is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49692

Titill: 
  • Áhrif sjálfvirkni og gervigreindar á framtíð reikningsskila: Hvernig tæknin umbreytir hlutverki endurskoðenda og þróun reikningsskila.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um áhrif sjálfvirkni og gervigreindar á hlutverk endurskoðenda og þróun reikningsskila. Markmiðið er að varpa ljósi á hvernig tækniframfarir hafa mótað, og munu áfram, móta störf innan endurskoðunar. Sjálfvirkni og gervigreind hafa nú þegar haft mikil áhrif á vinnuferla innan greinarinnar og gert mögulegt að vinna úr miklu magni gagna á hraðari og nákvæmari hátt en áður. Verkefni sem áður voru framkvæmd handvirkt, svo sem skráning færslna, afstemmingar og gagnagreining, eru í dag að miklu leyti framkvæmd með sjálfvirkum lausnum og greiningartækni. Ritgerðin byggir á fræðilegum heimildum og greiningu á þróun sjálfvirkra ferla, gervigreindar og gagnadrifinna ákvarðanatækja í reikningsskilum. Fjallað er um hvernig þessi tækni umbreytir starfsháttum, hvaða hæfni eru orðin nauðsynleg fyrir fagfólk í greininni og hvaða siðferðilegar áskoranir fylgja notkun hennar, meðal annars í tengslum við gagnavernd, hlutdrægni reiknirita og gagnsæi. Þá er einnig fjallað um nýjar færnikröfur og hvernig menntakerfi og atvinnulíf þurfa að aðlagast til að undirbúa fagstéttina fyrir breytt starfsumhverfi. Helstu niðurstöður benda til þess að sjálfvirkni og gervigreind auki skilvirkni og nákvæmni í reikningsskilum, en kalli jafnframt á breytta nálgun, aukna siðferðilega ábyrgð og tæknilæsi hjá endurskoðendum. Þróunin felur því ekki aðeins í sér tækifæri heldur einnig áskoranir sem mikilvægt er að bregðast við með fræðslu, símenntun og uppfærslu vinnubragða. Ritgerðin leggur þannig grunn á frekari umræðu og rannsóknum á því hvernig fagfólk getur brugðist við tæknibreytingum á ábyrgan og faglegan hátt.

Samþykkt: 
  • 30.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49692


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð - Emese Erzsébet Józsa.pdf497,94 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf10,59 MBLokaðurYfirlýsingPDF