is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49705

Titill: 
  • ,,Þetta verður að vera skemmtilegt." Viðhorft leikskólakennara til gildis tónlistar í barnastarfi.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf leikskólakennara til tónlistar í starfi með yngstu börnunum í leikskóla. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin viðtöl við sex leikskólakennara með fjölbreyttan bakgrunn, starfsreynslu og menntun. Leitast var við að skilja hvernig tónlist birtist í daglegu starfi, hvaða námstækifæri hún skapar og hvaða áskoranir og tækifæri kennarar upplifa í tengslum við tónlistarstarf. Niðurstöðurnar sýna að kennararnir líta á tónlist sem eðlilegan og mikilvægjan hluta af leikskólastarfi. Tónlist var talin styðja við margvíslega þroskaþætti barna, svo sem málörvun, hreyfiþroska, félagsfærni og tilfinningagreind. Þá kom fram að tónlist getur aukið þátttöku, tjáningu og vellíðan barna og þannig stuðlað að inngildandi starfsháttum. Kennarar sem sýna áhuga og jákvæð viðhorf til tónlistar nýta hana meðvitað og fjölbreytt, jafnvel þótt þeir hafi ekki formlega tónlistarmenntun. Á sama tíma komu fram áskoranir sem snúa að tíma, stuðningi og viðhorfum innan starfsumhverfisins. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi þess að efla fræðslu, faglegt svigrúm og stuðning til að nýta tónlist markvisst í þágu þroska, náms og velferðar allra barna.

Samþykkt: 
  • 30.4.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49705


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ylfa B.ed ritgerð.pdf1,14 MBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
2024_Skemman_yfirlysing3__1_ Ylfa.pdf85,95 kBLokaðurYfirlýsingPDF