is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/49998

Titill: 
  • Áhrif gervigreindar á stjórnendareikningsskil fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna áhrif gervigreindar á stjórnendareikningsskil fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (LMF). Ritgerðin greinir frá því hvernig gervigreind getur haft jákvæð áhrif á ferla sem tengjast gagnasöfnun, skýrslugerð og ákvarðanatöku innan fyrirtækja, meðal annars með sjálfvirknivæðingu, gagnagreiningu og forspárgreiningu. Með innleiðingu gervigreindar geta fyrirtæki aukið skilvirkni, dregið úr kostnaði og bætt nákvæmni í reikningsskilum. Jafnframt er farið yfir áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar, þar á meðal tæknilegar hindranir, skort á þekkingu og siðferðisleg álitaefni eins og gagnsæi og ábyrgð. Skoðað er hvernig tæknin hefur áhrif á daglega starfsemi LMF, framtíð starfa í reikningsskilum og hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig fyrir breyttar aðstæður með markvissri innleiðingu gervigreindar. Niðurstöður benda til þess að gervigreind geti verið mikilvægur þáttur í því að styrkja rekstur LMF, en til að það takist þurfa fyrirtæki að takast á við áskoranir tengdar fjármagni, menntun starfsmanna og innleiðingarferlum.

Samþykkt: 
  • 9.5.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/49998


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Áhrif gervigreindar á stjórnendareikningsskil fyrir LMF.pdf335,15 kBLokaður til...14.06.2025HeildartextiPDF
Yfirlýsing.pdf836,55 kBLokaðurYfirlýsingPDF