Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/49998
Tilgangur þessarar ritgerðar er að kanna áhrif gervigreindar á stjórnendareikningsskil fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki (LMF). Ritgerðin greinir frá því hvernig gervigreind getur haft jákvæð áhrif á ferla sem tengjast gagnasöfnun, skýrslugerð og ákvarðanatöku innan fyrirtækja, meðal annars með sjálfvirknivæðingu, gagnagreiningu og forspárgreiningu. Með innleiðingu gervigreindar geta fyrirtæki aukið skilvirkni, dregið úr kostnaði og bætt nákvæmni í reikningsskilum. Jafnframt er farið yfir áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar, þar á meðal tæknilegar hindranir, skort á þekkingu og siðferðisleg álitaefni eins og gagnsæi og ábyrgð. Skoðað er hvernig tæknin hefur áhrif á daglega starfsemi LMF, framtíð starfa í reikningsskilum og hvernig fyrirtæki geta undirbúið sig fyrir breyttar aðstæður með markvissri innleiðingu gervigreindar. Niðurstöður benda til þess að gervigreind geti verið mikilvægur þáttur í því að styrkja rekstur LMF, en til að það takist þurfa fyrirtæki að takast á við áskoranir tengdar fjármagni, menntun starfsmanna og innleiðingarferlum.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif gervigreindar á stjórnendareikningsskil fyrir LMF.pdf | 335,15 kB | Locked Until...2025/06/14 | Complete Text | ||
Yfirlýsing.pdf | 836,55 kB | Locked | Declaration of Access |