Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50064
Foreign tourist visits to Landspítali‘s emergency departments in 2021: Specific nursing care needs
Bakgrunnur: Veruleg aukning hefur orðið á komum erlendra ferðamanna á Íslandi undanfarin ár og hefur því eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu aukist sem skapar áskoranir fyrir heilbrigðiskerfið. Heilsutengd vandamál geta komið upp hjá ferðamönnum af mismunandi orsökum og sýnt hefur verið fram á að ferðamenn leita í auknum mæli til bráðamóttöku vegna þessa. Nauðsynlegt er að bæta hjúkrunarúrræði og setja skýra stefnu svo hægt sé að tryggja bæði gæði og viðeigandi þjónustu fyrir erlenda ferðamenn og Íslendinga sem nota heilbrigðisþjónustuna auk þess að veita stuðning fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Tilgangur: Að öðlast frekari upplýsingar um komur og hjúkrunarþarfir erlendra ferðamanna á bráðamóttöku Landspítala á árinu 2021.
Aðferðir: Gerð var afturskyggn athugunarrannsókn á gögnum úr sjúkraskrám einstaklinga með gervikennitölur á bráðamóttökur Landspítala árið 2021. Frekari inntökuskilyrði úrtaks voru að einstaklingarnir væru hér tímabundið. Hælisleitendur, flóttafólk eða vinnumenn voru útilokaðir frá úrtakinu ásamt þeim kennitölum sem voru óvirkar eða gögn vantaði. Skráðar voru sérstaklega rannsóknir svo sem blóðprufur, myndgreiningar, ásamt einangrun og túlkaþjónustu. Gögnin sem stóðust skilyrðin voru greind í Jamovi-tölfræðiforritinu.
Niðurstöður: Í gagnagrunninum voru 1493 komur og þar af voru 887 sem töldust erlendir ferðamenn. Niðurstöður sýndu að flestar komur voru hjá erlendum ferðamönnum á aldursbilinu 20-29 ára, fall eða bylta og kviðverkir voru algengustu ástæður komu. Einangrun 10,4% (n=54), 3,7% fengu túlkaþjónustu og 23,1% sérstaka aðstoð við útskrift. Flestir voru hér á eigin vegum.
Ályktun: Niðurstöðurnar sýna að erlendir ferðamenn sem leituðu á bráðamóttöku Landspítala árið 2021 þurftu fjölbreyttar hjúkrunarmeðferðir og oft aðrar en Íslendingar. Huga þarf að verkferlum og bættri skráningu fyrir hjúkrunarþarfir erlendra ferðamanna til að tryggja sem besta og hagkvæmasta þjónustu. Frekari rannsókna er þörf á þessu sviði.
Lykilorð: ferðalög, heilsa ferðamanna, sjúkrahús, heilsutengd ferðaþjónusta, hjúkrunarfræðingar, ferðamenn, samskiptahindranir, menningarleg fjölbreytni, áhrif á ferðaþjónustu, ferðasjúkdómar, menning
Background: There has been a significant increase in foreign tourists visiting Iceland in recent years, which has led to an increased demand for healthcare services, creating challenges for the healthcare system. Health related problems can arise among foreign tourists for various reasons, and it has been shown that foreign tourists are increasingly seeking emergency services as a result. It is necessary to improve nursing resources and implement a clear policy to ensure both quality and appropriate services for foreign tourists and Icelandic residents who use the healthcare service, as well as provide support for healthcare professionals.
Purpose: To obtain further information about the arrivals and nursing care needs of foreign tourists at the emergency departments of Landspítali (The National University Hospital of Iceland) in the year 2021.
Methods: A retrospective observational study was conducted by reviewing the data from electronic medical records of foreign tourists of the emergency department of Landspítali in 2021 by examining non-resident patients without an Icelandic social security number. These individuals were given temporary identification numbers (ID). The inclusion criteria for data from the database were that the owners of the ID numbers were here for only a certain period of time. An asylum seekers, refugees or workers were excluded, along with ID numbers that were inactive or missing data. Specific examinations such as blood tests and imaging and radiology studies were recorded, along with isolation and interpretation services. The data that met the inclusion criteria were analyzed using Jamovi statistical software.
Results: The database contained 1.493 arrivals, of which 887 met the inclusion criteria. Results showed that most arrivals were by foreign tourists aged 20-29 years, with falls and abdominal pain being the most common reasons for arrival. 10.4% (n=54) required isolation, 3.7% received interpreter services, and 23.1% needed special assistance upon discharge. The majority were traveling on their own.
Conclusion: The results indicate that foreign tourists who sought emergency care at Landspítali in 2021 required diverse nursing care treatments, often different from those needed by Icelandic residents. It is necessary to consider procedures and improve documentation for the nursing care needs of foreign tourists to ensure the best and most cost-effective service. Further research is needed in this area.
Keywords: travel, travelers health, hospital, health tourism, nurses, tourist, communication barriers, cultural diversity, impact on tourism, travel disease, culture.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Komur erlendra ferðamanna á bráðamóttöku Landspítala á árinu 2021.pdf | 1,04 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| Yfirlýsing.jpg | 133,46 kB | Lokaður | Yfirlýsing | JPG |