Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5011
Frá því að íslenskum félögum bar að framkvæma virðisrýrnunarpróf á varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum hefur mikil umræða verið um gæði þeirra. Þessi umræða hefur verið bæði jákvæð og neikvæð, en það neikvæða hefur aðallega snúið að viðskiptavild. Virðisrýrnunarpróf á viðskiptavild þykja af mörgum gera kröfur um ýmsa matskennda hluti og vera þar af leiðandi verkfæri til að upphefja efnahagsreikninga félaga. Í þessari ritgerð verður farið í gegnum það hvernig félögum ber samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum að framkvæma virðisrýrnunarpróf á þessum eignum og hvernig færa skuli virðisrýrnun til bókar. Farið verður yfir íslensku ársreikningalögin og skoðað hvernig þau stangast á við alþjóðlegu staðlana. Sú gagnrýni sem fram hefur komið á virðisrýrnunarprófin verður skoðuð og sett í samhengi við aðstæður á Íslandi. Í lokin eru ársreikningar fjögurra félaga á Íslandi skoðaðir með tilliti til virðisrýrnunar á óefnislegum eignum og varanlegum rekstrarfjármunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
RITGERÐ-pdf.pdf | 386,32 kB | Lokaður | Heildartexti |