is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50332

Titill: 
  • Vistgerðaval helsingja á Íslandi
  • Titill er á ensku Habitat Selection of Barnacle Geese in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ísland er viðkomustaður helsingja í farflugi, en á síðustu árum hefur varpstofn helsingja hérlendis vaxið og orðið meira áberandi. Helsingjar sýna mun á landnotkun og fæðuvali á varpstöðvum og virðast velja ákveðin búsvæði eftir tímabilum yfir sumarið.
    Í verkefninu var vistgerðaval varpstofns helsingja á Íslandi kannað. Það var borið saman við álegu og ungatíma, með því að skoða breytileika milli mánaða. Einnig var athugað hvort munur væri milli einstaklinga innan stofnsins. Spurt var hve mikið helsingjarnir dvöldu í ræktarlandi, samanborið við villtan gróður, vegna árekstra þeirra við bændur á Suðausturlandi. Þá var skoðað hvort munur væri á vistgerðarvali eftir tíma dags og milli ára.
    Greind voru staðsetningargögn fyrir 34 helsingja, sem merktir voru á árunum 2020-2024, og þau tengd við vistgerðakort af Íslandi. Fyrst voru gerðar gæðaprófanir á gagnasafninu og daglengdarupplýsingar færðar inn. Næst voru gerð myndrit og χ2-próf til að kanna breytileika milli einstaklinga og tímabila. Einnig var viðvera í ræktarlandi könnuð.
    Niðurstöðurnar sýna töluverðan breytileika í vistnýtingu helsingja, sérstaklega milli einstaklinga. Einnig virðist vera munur eftir tíma dags og mánuðum, sem helst að einhverju leyti í hendur við atferli helsingjanna yfir sumarið. Áberandi er að margir helsingjar voru nálægt vatni á ungatíma og margir sóttu í tún og akurlendi í apríl og ágúst. Þeir virtust þó ekki nýta sér ræktarland meira en villtan gróður yfir sumarið.
    Möguleikar eru á áframhaldandi rannsóknum á þessu viðfangsefni. Tímaraðalíkan gæti átt vel við, sem samræmist betur eðli gagnanna. Athuganirnar gefa ákveðnar vísbendingar um vistgerðaval helsingja á Íslandi og geta nýst sem grunnur, bæði fyrir nánari greiningu á gögnunum, og vistfræðilegar samaburðarrannsóknir.

  • Útdráttur er á ensku

    Barnacle geese routinely use Iceland as a stopover site during migration. However, a breeding population has formed in Iceland and grown in recent years. Previous studies have shown that the barnacle geese‘ landuse and food selection in their breeding grounds differ over the summer, and their habitat selection seems to change over the summer, relating to incubation and raising chicks.
    The aim of this study was to explore the habitat selection of barnacle geese breeding in Iceland over the summer, by viewing variance between months, along with investigating individual variance. Due to conflict between barnacle geese and farmers in the southeast of Iceland, the birds‘ use of agricultural land was examined. Furthermore, difference in habitat use by time of day and by different years was considered.
    GPS-data from 34 individual barnacle geese, tagged in 2020-2024, was integrated with a map showing habitat types in Iceland. Firstly, the data‘s structure and quality were viewed and daylength information was added. Plots and χ2 tests were then used to investigate variance in habitat selection. The geese‘ utilization of agricultural land was also examined.
    The results suggest individual variance in land use. Additionally, habitat selection seems to differ, by time of day and between months. This is somewhat consistent with the barnacle geese‘ behaviour over the summer. Numerous individuals were close to water bodies in the post-hatching period and many resided in agricultural land during april and august. However, the use of agricultural land was not very high, relative to that of other habitat types, throughout the summer.
    This study opens up possibilities for further research regarding this subject. Time series analysis could be an appropriate next step, better fitting for this type of data. However, the results from this study serve as a foundation, both for further analysis of the data, and for comparative ecological research, along with being an indication of barnacle geese‘ habitat selection in Iceland.

Samþykkt: 
  • 22.5.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50332


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-ritgerd_lokaskil_4.pdf4,85 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlysing.pdf538,67 kBLokaðurYfirlýsingPDF