Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50337
Design of an assessment checklist for physical therapist intake interviews and organizational behavior management to enhance treatment integrity
Þrátt fyrir aukna meðvitund um mikilvægi meðferðartryggðar er skortur á rannsóknum sem beina sjónum að því hvernig hægt sé að tryggja hana markvisst í klínísku starfi. Þetta á meðal annars við innan heilbrigðisþjónustu, þar sem óljóst er hvort verklag sé alltaf í samræmi við gagnreynda þekkingu og hvort þjónustugæði séu hámörkuð fyrir skjólstæðinga. Aðferðafræði atferlismiðaðrar stjórnunar (OBM) hefur sýnt fram á árangur við að stuðla að aukinni meðferðartryggð með því að aðgerðabinda verkferla, setja skýr viðmið og innleiða reglulegar mælingar á gæðum þjónustu. Í þessu samhengi gegnir aðgerðabinding verklags, eins og í inntökuviðtölum, lykilhlutverki við að efla gæði þjónustu og bæta meðferðarárangur. Markmið þessarar rannsóknar var að hanna matslista fyrir inntökuviðtöl sjúkraþjálfara með notendamiðaðri nálgun, þar sem samþættar voru eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir og aðferðir atferlismiðaðrar stjórnunar úr hagnýtri atferlisgreiningu nýttar til að auka meðferðartryggð þátttakenda. Tilraun eitt miðaði að hönnun matslistans, þar sem viðmið sjúkraþjálfunardeildar Háskóla Íslands voru höfð að leiðarljósi ásamt þörfum og reynslu starfandi sjúkraþjálfara. Við þróun listans voru m.a. notuð gögn úr rýnihópaviðtölum við reynda sjúkraþjálfara. Í tilraun tvö var matslistinn prófaður með einliðasniðsrannsókn þar sem meðferðartryggð var metin og tilteknar OBM-aðferðir eins og endurgjöf (e. performance feedback), skýring verkferla (e. task clarification) og jákvæð styrking (e. positive reinforcement) voru nýttar til að auka meðferðartryggð enn frekar. Helstu niðurstöður sýndu að eigindleg gögn, sérstaklega úr rýnihópaviðtölum, reyndust afar gagnleg til að hanna nothæfan og markvissan matslista. Einliðasniðsrannsóknin sýndi að meðferðartryggð í inntökuviðtölum var þegar frekar há á grunnskeiði, sem bendir til þess að þátttakendur séu að spyrja lykilspurninga fyrir meðferðarskipulag. Hins vegar leiddu OBM-aðferðirnar til aukinnar stöðlunar og samræmis í framkvæmd viðtalanna, sem gæti tryggt meiri jöfnuð og gæði í þjónustu til langs tíma.
Despite growing awareness of the importance of treatment integrity, there is a paucity of research focusing on systematic methods to ensure its consistent application in clinical practice. This gap is especially prominent within healthcare settings, where it is not always clear whether clinical procedures align with evidence-based knowledge or whether service quality is optimized for clients. Organizational Behavior Management (OBM), a sub-discipline of Applied Behavior Analysis (ABA), has demonstrated effectiveness in improving treatment integrity through the operationalization of procedures, implementation of clear guidelines, and regular performance measurement. In this context, operationalizing clinical processes, such as intake interviews, plays a critical role in enhancing service quality and treatment outcomes. The aim of this study was to design a user-centered assessment checklist for physical therapy intake interviews by integrating qualitative and quantitative research methods and to employ OBM strategies from ABA to enhance physical therapists' treatment integrity. The first experiment focused on developing the checklist, guided by clinical standards from the Department of Physical Therapy at the University of Iceland and informed by the experiences and input of practicing physical therapists. Qualitative data from focus group interviews with experienced therapists were instrumental in checklist development. In the second experiment, the checklist was evaluated using a single-case experimental design to measure treatment integrity, and specific OBM strategies such as performance feedback, task clarification and positive reinforcement were applied to further improve integrity. The primary findings demonstrated that qualitative data, particularly from focus group interviews, proved highly effective in developing a practical and functional assessment checklist. The single-case experimental study indicated that treatment integrity during intake interviews was relatively high at baseline, suggesting that participants performed intake procedures effectively and asked essential questions necessary for treatment planning. Nevertheless, OBM strategies led to increased standardization and consistency in interview implementation, potentially contributing to more uniform and higher-quality service delivery over the long term.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Hönnun matslista fyrir inntökuviðtal sjúkraþjálfara og atferlismiðuð stjórnun til að auka meðferðartryggð - Sigrún Elfa Ágústsdóttir.pdf | 4,54 MB | Lokaður til...30.06.2050 | Heildartexti | ||
| 2025_Skemman_yfirlysing - Sigrún Elfa.pdf | 121,72 kB | Lokaður | Yfirlýsing |
Athugsemd: Skrár lokaðar út af mögulegum greinaskrifum.