is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Þverfræðilegt nám > Hagnýt atferlisgreining >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50390

Titill: 
  • Félagsfærnikennsla barna með sérþarfir á leikskólaaldri
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin snéri að því að skoða áhrif Preschool life skills (PLS) félagsfærnikennslu á félagsfærni og óæskilega hegðun barna með sérþarfir í íslenskum leikskólum. PLS er ætlað að koma í veg fyrir óæskilega hegðun með því að kenna börnum grundvallarfærni sem nauðsynleg er til þess að takast á við mismunandi félagslegar aðstæður. Markmið félagsfærnikennslunnar var að bæta félagsleg samskipti barnanna og undirbúa þau betur fyrir upphaf grunnskólagöngu. Kenndir voru fjórir mismunandi flokkar færni, sem innihéldu samtals tíu félagsfærniþætti. Félagsfærniflokkarnir voru: 1) að fara eftir fyrirmælum; 2) hagnýt samskipti; 3) þol á töf fyrir athygli og 4) vináttufærni. Notuð var atferlismiðuð færniþjálfun sem fólst í leiðbeiningum, sýnikennslu, æfingum og endurgjöf á frammistöðu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort PLS gæti a) aukið félagsfærni barna með sérþarfir í íslenskum leikskólum, b) dregið úr óæskilegri hegðun þeirra og c) hvort hægt væri að gera það einugis með einstaklingskennslu. Þátttakendur voru tvö 5 ára gömul börn í leikskóla á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður sýna að báðir þátttakendur juku félagsfærni sína til muna og sú félagsfærni viðhélst hjá þeim báðum í nær öllum félagsfærniþáttum eftir að inngrip var fjarlægt. Tilvikum óæskilegrar hegðunar á inngripsskeiði hjá þátttakanda 1 fækkaði verulega samanborið við grunnskeið á þeim félagsfærniþáttum þar sem óæskileg hegðun kom fram. Tilvikum óæskilegrar hegðunar á inngripsskeiði hjá þátttakanda 2 fækkaði samanborðið við grunnskeið á flestum félagsfærniþáttum þar sem óæskileg hegðun kom fram.
    Efnisorð: Hagnýt atferlisgreining, félagsfærnikennsla, Preschool life skills, Atferlismiðuð færniþjálfun, óæskileg hegðun, einstaklingskennsla, leikskóli.

  • Útdráttur er á ensku

    This study focused on examining the effects of Preschool Life Skills (PLS) social skills instruction on special needs children‘s social skills and problem behavior in Icelandic preschools. The PLS teaching method aims to prevent undesirable behavior by teaching children fundamental skills necessary for navigating various social situations. The goal of the social skills training was to improve the children’s social interactions, thereby better prepare them for the start of their primary school journey. Four different skill categories were taught, comprising a total of ten social skill components. These skill categories were: 1) following instructions, 2) functional communication, 3) tolerance of delays in receiving attention, and 4) friendship skills. Behavioral Skills Training (BST) was used, which included instructions, modeling, practice, and performance feedback. The purpose of this study was to examine whether PLS could a) improve social skills of children with special needs in Icelandic preschools, b) reduce their undesirable behaviors, and c) achieve these goals through individualized instruction alone. The participants of this study were two 5-year-old children in preschool, located in the capital area of Iceland. The results indicate that both participants significantly improved their social skills and maintained almost all skill components taught in the follow-up phase. Instances of undesirable behavior during the intervention phase for participant 1 decreased substantially compared to the baseline measurements for the social skill components, where such behavior had previously occurred. For participant 2, instances of undesirable behavior also decreased during the intervention phase compared to the baseline phase for almost all social skills components where undesirable behavior had been observed.
    Keywords: Applied behavioral analysis, social skills training, Preschool Life Skills, behavioral skills training, problem behavior, individualized training, preschool.

Samþykkt: 
  • 26.5.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50390


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
yfirlýsing.pdf54,46 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Félagsfærnikennsla barna með sérþarfir á leikskólaaldri.pdf2,9 MBLokaður til...01.05.2030HeildartextiPDF