Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50406
Í þessari ritgerð er fjallað um endurnýjun á lítilli vatnsaflsvirkjun sem staðsett er á Litla-Sandfelli í Skriðdal. Helsta ástæða endurnýjunarinnar er sú að virkjunin er gömul og þarfnast nútímavæðingar.
Helstu aðferðir voru að reikna heildar framleiðslugetu vatnsaflsins og útfrá því velja búnað sem hentar vel fyrir aðstæður á Litla-Sandfelli. Einnig eru skoðaðar mismunandi aðferðir til að bæta nýtingu auðlindarinnar með að nýta umfram framleitt afl í aðra hluti, eins og
upphitun á gróðurhúsi, vetnisframleiðsla og rafmyntargröftur.
Helstu niðurstöður eru að hægt er að auka núverandi aflframleiðslu og nota til þess Turgo hverfil. Einnig er hægt að bæta stöðuleika í framleiddu rafmagni með að nota AVR kerfi og ELC kerfi.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Endurnýjun á virkjun Litla-Sandfells.pdf | 5,01 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |