is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Náttúra og skógur > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50486

Titill: 
  • Titill er á ensku Vegetation on Icelandic Turf Houses and in Surrounding Habitats
  • Gróður á íslenskum torfbæjum og í nærliggjandi vistlendum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Torfbæir eru tákn íslenskrar arfleifðar, byggðir að hluta úr torfi sem var meðal annars fengið úr efri lögum íslenskra mýra þar sem grös og starir voru ríkjandi. Torfbæir voru áður taldir
    merki fátæktar og í byrjun 20. aldar voru margir þeirra eyðilagðir. Þetta verkefni er hluti af verkefninu The Icelandic Turf House: A more-than-human story sem miðar að því að skoða torfbæinn ekki aðeins sem mannvirki heldur einnig sem vistkerfi. Í verkefninu er lögð áhersla
    á að skilgreina torfbæinn sem eitthvað meira en bara sögulegt mannvirki með því að bæta vistfræðilegri vídd við lýsingu þess. Markmið verkefnisins er að leggja til að torfbærinn sé
    sérstök vistgerð, byggð á vistgerðarflokkun Náttúrufræðistofnunar Íslands. Til þess að geta gert það er nauðsynlegt að rannsaka nokkra þætti torfbæjarins, svo sem gróður, sem var forsenda
    þessarar ritgerðar. Hér voru aðalmarkmiðin að meta mun á gróðurþekju milli torfbæja og nærliggjandi vistlenda og að bera saman gróður torfbæja á mismunandi svæðum. Fimm torfbæir voru teknir fyrir. Tveir 15 m2 reitir voru rannsakaðir á hverjum torfbæ og í nærliggjandi vistlendum og innan hvers reits voru fjórir 50 cm x 50 cm rammar settir út af handahófi til gróðurgreiningar. Við úrvinnslu gagna voru reitir bornir sjónrænt saman með ólínulegri fjölbreytugreiningu auk þess sem gróður mismunandi vistlenda var borinn saman með tölfræðilíkönum. Niðurstöður leiddu í ljós verulegan mun á tegundasamsetningu torfbæja og votlendis annars vegar og kjarrlendis hins vegar, en henni svipaði hins vegar talsvert til graslendis. Munurinn var hvað mestur við samanburð torfbæja og votlendis, þrátt fyrir að torfið væri upprunnið úr votlendi. Nokkur breytileiki milli torfbæjanna bendir til þess að gróður þeirra verði fyrir áhrifum utanaðkomandi þátta svo sem mannlegra, veðurfræðilegra og vistfræðilegra þátta.
    Lykilorð: Gróður, gróðurþekja, torfbær, umhverfisþættir, veðurfarsáhrif, vistgerð, vistlendi.

  • Útdráttur er á ensku

    Turf houses are a symbol of Icelandic heritage, built primarily with turf which was mainly sourced from the upper layer of Icelandic mires or wetlands where grasses and sedges were the dominant vegetation. They were often viewed as substandard and associated with shame and
    disease, and by the early 20th century, many of them were demolished. This project is a part of the study The Icelandic Turf House: A more-than-human story which aims to examine the turf house not only as a human-made structure but also as a complex ecosystem. It highlights that
    the turf house is much more than a historic structure by adding an ecological layer to its description. The project aims to propose the Icelandic turf house as a unique habitat type, based on the natural habitat classification of The Icelandic Institute of Natural History. In order to do so, it is necessary to study a few aspects of the turf house such as the vegetation, which was the aim of this thesis. The primary objectives were to study the differences in vegetation cover between turf houses and their surrounding habitats and to assess whether turf houses located in different areas had similar vegetation. Five turf houses were considered. Two 15 m2 plots were studied on each turf house and in surrounding habitats, and within each plot, four 50 cm x 50
    cm quadrats were randomly placed for vegetation analysis. In the data analysis, plots were visually compared using nonmetric multidimensional scaling, in addition to comparing the vegetation of different habitats using statistical models. The results revealed significant differences when comparing turf houses to wetlands and shrublands, but they were quite similar to grasslands. The difference was greatest when comparing turf houses and wetlands, despite the turf originating from wetlands. Variations among turf houses suggest that their vegetation is influenced by human, meteorological, and ecological factors.
    Keywords: Ecosystem, Environmental factors, Habitat, Habitat types, Meteorological influences, Turf houses, Vegetation, Vegetation cover.

Samþykkt: 
  • 3.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50486


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
EvlalíaKolbrúnÁgústsdóttir_Meistararitgerð.pdf1,37 MBOpinnPDFSkoða/Opna