is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50563

Titill: 
  • Áhrif tímalengdar kjarnfóðurgjafar á vöxt og afurðir lambgimbra
  • Titill er á ensku The effect of duration of concentrate feeding on growth and production of ewe lambs
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilraun var gerð með að fóðra lambgimbrar á tvo vegu varðandi kjarnfóðurgjöf og kanna í framhaldi hvort marktækur munur yrði á gripunum sjálfum með tilliti til þunga, holdastiga og frjósemi sem og hvort marktækur munur væri á afurðum eftir gemlingsárið. Markmið verkefnisins var að kanna hvort meiri árangur fengist með því að fóðra gimbrar á kjarnfóðri allan veturinn í stað þess að byrja að gefa þeim kjarnfóður í janúar. Fóðurmeðferðirnar voru tvær, annars vegar kjarnfóðurgjöf frá nóvember til apríl og hins vegar kjarnfóðurgjöf frá janúar til apríl en heildarmagn kjarnfóðurs var það sama fyrir báðar meðferðir.

    Tilraun þessi var framkvæmd á tilraunabúinu Hesti í Borgarfirði veturinn 2023-2024. Gögn sem notuð voru í tilraunina eru frá árinu 2024. Ásetningsgimbrar voru 123 haustið 2023 en í tilraunina voru notaðar 100 gimbrar. Þannig pössuðu hóparnir á sitthvora gjafagrindina (um 25 gripir í hóp) og var þá búið að taka frá útlaga í bæði kynbótamati og þyngd.

    Niðurstöður sýna að ekki var marktækur munur á þunga gimbra milli hópanna en aftur á móti var marktækur munur á holdastigi milli hópanna frá mars 2024 og fram á vor. Sá hópur sem fékk kjarnfóður yfir lengra tímabil kom betur út hvað það varðar. Ekki reyndist marktækur munur á fæðingarþunga lamba undan gimbrunum nema ef skoðaðir voru sérstaklega tvílembingar, þá voru lömbin undan þeim gimbrum sem fengu kjarnfóður lengur marktækt þyngri. Ekki var marktækur munur á vexti fram að fjallrekstri lamba sem gengu ein undir gimbrunum en hins vegar var marktækur munur ef skoðaður var vöxtur fram á haust, þá voru lömb sem gengu undir gimbrunum sem höfðu fengið kjarnfóður yfir lengra tímabil þyngri. Ekki reyndist marktækur munur á fallþunga lamba undan gimbrunum.
    Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að betra sé að gefa kjarnfóður yfir lengra tímabil þó að ekki komi fram marktækur munur á öllum þeim þáttum sem voru skoðaðir.

Samþykkt: 
  • 11.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50563


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_ritgerð_2025_Logi_Sigurðsson.pdf1,05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna