is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50564

Titill: 
  • Samband uppgefins og mælds mjólkurflæðis hjá fjórum tegundum mjaltaþjóna á Íslandi
  • Titill er á ensku Relationship between stated and measured milk flow among four dairy robots in Iceland
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í kynbótamati kúa eru nokkrir eiginleikar metnir, einn af þeim eru mjaltir. Í ræktun íslenska kúakynsins er markmiðið að velja kýr sem mjólka jafnt og hratt, en draga úr mismjöltum. Á búum sem nota mjaltaþjóna er stuðst við viðmiðunartöflu um mjólkurflæði til að ákvarða einkunnina. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvernig mælingar hjá mismunandi tegundum mjaltaþjóna raðast á línulegan einkunnakvarða og hvort þörf sé á að endurmeta kvarðann fyrir einhverjar þeirra.
    Mjaltaþjónategundir eru fjórar hér á landi eins og er. Farið var á fimm bú með hverri mjaltaþjónategund og teknar mælingar á 10 gripum á hverjum stað. Að lokum var þá búið að heimsækja 20 bú og safna 200 mælingum.
    Samband á milli samanburðamælinga voru missterkar hjá mjaltaþjónunum sem sýndi að þörf gæti verið á að endurskoða línulega einkunnaskalann fyrir suma mjaltaþjóna svo kýr úr mismunandi mjaltaþjóna fjósum fái sambærilega einkunn fyrir sama mjókurflæði.

Samþykkt: 
  • 11.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50564


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_VilborgEvaGuðmundsdóttir.pdf1,39 MBOpinnPDFSkoða/Opna