is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Landbúnaðarháskóli Íslands > Ræktun og fæða > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50565

Titill: 
  • Tengsl skrokkmála við aðaleinkunn fyrir hæfileika hjá íslenska hestinum
  • Titill er á ensku Association of conformation and riding ability in the Icelandic horse
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kynbótadómar íslenskra hrossa samanstanda af skrokkmælingum, sköpulagsdómi og hæfileikadómi. Markmið þessa verkefnis var að meta áhrif skrokkmála á aðaleinkunn fyrir hæfileika íslenska hestsins og kanna tengsl byggingar og hæfileika. Teknar voru saman upplýsingar um stærð og byggingarlag hrossa út frá skrokkmálum sem mæld eru á kynbótasýningum fyrir íslensk hross. Gögnin voru fengin úr Worldfeng og innihéldu alla kynbótadóma frá árunum 2014-2024 (15.281 dómur). Fervikagreining var framkvæmd með tölfræðiforritinu SAS og leiðrétt var fyrir föstum hrifum aldri / kyns og sýningarárs, hrifin höfðu í öllum tilfellum marktæk áhrif á aðaleinkunn hæfileika. Lýsandi tölfræði var einnig framkvæmd. Tengsl skrokkmála við aðaleinkunn hæfileika voru skoðuð en til þess að lýsa byggingarlagi hestsins nákvæmlegar voru einnig notaðar breytur sem reiknaðar voru út frá hefðbundum skrokkmálum.
    Niðurstöður sýndu fram á að hefðbundin skrokkmál og reiknuð skrokkmál höfðu marktæk áhrif á aðaleinkunn hæfileika. Breyturnar: framhæð, baklína, lengd, lengd1, fótahæð, hæð á herðar, hæð á bak, brjóstdýpt og brjóstbreidd höfðu hámarktæk áhrif á aðaleinkunn hæfileika. Aðrar marktæktar breytur voru hæð á lend, bollengd, breidd lærleggstoppa, breidd framleggs, ummál framhnés og ummál framleggs. Flest skrokkmálin sýndu línulegt samband við aðaleinkunn hæfileika. Breyturnar: Fótahæð, lengd, breidd framleggs, breidd um lærleggstoppa og framhæð skýrðu stærstan hluta af heildarbreytileika aðaleinkunnar hæfileika. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á að bygging hestsins hefur marktækt áhrif á hver endanleg aðaleinkunn fyrir hæfileika er. Þá kom í ljós að frambygging hestsins skiptir miklu máli, framhæð hefur aukist og hefur jákvæð áhrif á aðaleinkunn hæfileika. Meiri fótahæð býr til lengra skref sem leiðir til meiri glæsileika og fallegri hrossa. Álykta má út frá niðurstöðum að æskilegt sé rækta framfalleg, háfætt og bollétt hross með sterka yfirlínu en það eykur líkur á því að hross eigi auðveldara með rétta líkamsbeitingu, burð, ganghæfni og fleira. Niðurstöðurnar gefa hugmyndir um hvernig tengsl skokkmála við aðaleinkunn hæfileika séu en það er verðmætt við ræktun íslenska hestsins og þróun kynbótadóma.

Samþykkt: 
  • 11.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50565


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS_Ritgerð_Melkorka_Gunnarsdóttir.pdf1,77 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna