is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BA Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/50733

Titill: 
  • HHI-stuðullinn : lagaleg álitaefni við mat á láréttum samrunum fyrirtækja
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig Samkeppniseftirlitið á Íslandi hefur beitt Herfindahl-Hirschman Index (HHI-stuðlinum) við mat á samkeppnislegum áhrifum láréttra samruna í ákvörðunum sínum sl. fimm ár. HHI-stuðullinn er viðurkennt mælitæki samþjöppunar á markaði og hefur verið mikilvægur áhrifaþáttur í niðurstöðum bandarískra og evrópskra samkeppnisyfirvalda vegna láréttra samruna. Fjallað er um uppruna og þróun stuðulsins, hvernig hann birtist í samrunareglum á Íslandi og í Evrópusambandinu og gerð er grein fyrir helstu gagnsemi og takmörkunum við notkun hans.
    Megintilgangur rannsóknarinnar er að varpa ljósi á með hvaða hætti og í hvaða mæli Samkeppniseftirlitið á Íslandi hefur notast við HHI-stuðulinn við rökstuðning ákvarðana sinna vegna láréttra samruna frá árinu 2020 til ársins 2024.
    Niðurstaða rannsóknarinnar bendir til þess að eftirlitið dragi ekki of miklar ályktanir af niðurstöðum HHI-mælinganna einna og sér. Rökstuðningur mælinganna samanstendur í flestum tilvikum af nákvæmum og ítarlegum greiningum á sérkennum hvers markaðar og þeirrar samkeppnisröskunar sem viðkomandi láréttur samruni gæti borið með sér. Hins vegar leiddi rannsóknin einnig í ljós að eftirlitið hafi fram að árinu 2022 ekki lagt mikla áherslu á að rökstyðja grundvöll og beitingu HHI í ákvörðunum sínum. Þar að auki sleppti eftirlitið í nokkrum þeirra tilvika að sýna með nákvæmum og ítarlegum hætti áhrif samruna á HHI-gildi, bæði fyrir og eftir hann.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis discusses how the Icelandic Competition Authority has applied the Herfindahl-Hirschman Index (HHI) in assessing the competitive effects of horizontal mergers in its decisions over the past five years. The HHI is a widely recognized measure of market concentration and has played a significant role in the decisions of U.S. and European competition authorities regarding horizontal mergers. The thesis covers the origin and development of the HHI, its integration into merger regulations in Iceland and the European Union, and provides an overview of its primary usefulness and limitations.
    The main objective of this research is to elucidate the manner and extent to which the Icelandic Competition Authority has utilized the HHI to support its decisions on horizontal mergers from 2020 to 2024.
    The findings indicate that the Authority does not overly rely solely on the outcomes of HHI measurements. Instead, its rationale typically comprises thorough and detailed analyses of market-specific characteristics and the competitive disruptions potentially arising from the relevant horizontal mergers. However, the research also revealed that up until 2022, the Authority did not place significant emphasis on explicitly justifying the basis and application of the HHI in its decisions. Furthermore, in some cases, the Authority omitted detailed presentations of how mergers impacted HHI values, both before and after their occurrence.

Samþykkt: 
  • 16.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/50733


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HHI stuðullinn. Lagaleg álitaefni við mat á láréttum samrunum fyrirtækja pdf.pdf676,96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna