Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/508
Ritgerðin fjallar um barnavernd og hvers konar mál sem þangað berast, meðferð þeirra og úrlausnir. Við lögðum helst áherslu á þau málefni sem snúa að börnum á leikskólaaldri og börnum í yngstu bekkjum grunnskóla, þar sem okkar nám felst í vinnu með börnum á þessu aldursbili. Við tókum tvö viðtöl á meðan á vinnsluferlinu stóð og voru þau við félagsráðgjafa barnaverndar Reykjavíkur og leikskólastjóra á höfuðborgarsvæðinu sem hefur reynslu af vinnu með barnaverndarmál. Þessi viðtöl voru afar áhugaverð og gáfu okkur mikla innsýn inn í heim barnaverndarmála og þá miklu vinnu sem að baki þeim liggur. Í viðtölunum kom berlega fram að starfsfólk leikskóla hræðist það að tilkynna mál til Barnaverndar sökum þess að starfsfólk vill ekki stefna nánu daglegum samskiptum sínum við foreldra í hættu. Vakti þetta mikla athygli okkar, því við þekkjum þetta úr okkar starfi og völdum okkur því að kafa dýpra og kynna okkur þessi mál til hlítar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Barna lund blíð er fædd - heild.pdf | 403.16 kB | Lokaður | heildarverkefni |