Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/5080
Í þessari ritgerð er fjallað um greinarýni og greinahefðir. Í fyrri hluta ritgerðar eru skoðaðar aðferðir til greinarýni og þá helst vitnað í Steve Neale, hugmyndir Rick Altman um merkingar- og setningarfræðilegan skilning á greinahefðum og síðan flokkun Colin McArthurs á táknmyndamynstri. Einnig verður stuttlega farið í þau vandamál greinarýni sem Guðni Elísson tiltekur í grein sinni „Í frumskógi greinanna. Kostir og vandamál greinafræðinnar“. Fyrri hluta er lokið með því að kynna eigin hugmyndir um greinaflokkun og kynnt hugtök úr mengjafræði. Í öðrum hluta er vikið að greiningu valinna kvikmynda eftir Jean-Pierre Melville út frá þeirri greinarýni sem skoðuð var í fyrri hluta. Að lokum er greiningin dregin saman og sett í samhengi við aðrar þjóðlegar greinahefðir.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BirgirSmari_lokaritgerd.pdf | 203.9 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
forsíða_titilsíða_útdráttur_tileinkun.pdf | 60.61 kB | Opinn | Forsíða, útdráttur o.fl. | Skoða/Opna |