Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/5081
Í kjölfar efnahagskreppu og bankahruns á Íslandi árið 2008 hefur skapast umræða um mögulegan þátt ferðaþjónustunnar í endurreisn atvinnulífsins. Aukin áhersla hefur verið lögð á að kynna menningu landsins og efla menningartengda ferðaþjónustu. Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða iðnaðararfleifð og hvaða forsendur ráða að hún verði til. Ullarverksmiðjan að Álafossi í Mosfellssveit var skoðuð í þessum tilgangi. Einnig var leitast við að svara þeirri spurningu á hvaða hátt ullarminjasafn á Álafossi væri kostur í menningartengdri ferðaþjónustu. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að gildi athafna, sem tengst hafa iðnaði, er mikilvæg forsenda fyrir iðnaðararfleifð. Athafnirnar sem geta verið hversdagslegar hafa þá gildi fyrir samfélagið í dag. Þessi gildi geta verið félagsleg, byggingarleg, tæknileg eða söguleg. Einnig gæti ullarminjasafn að Álafossi verið kostur í menningartengdri ferðaþjónustu á þann hátt að það gæti þjónað hlutverki arfleifðamiðstöðvar fyrir innlenda og erlenda ferðamenn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Alafoss_lokaverkefni-print.pdf | 2.57 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |