is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Tónlistardeild / Department of Music > Lokaverkefni / Final projects (BA, B.Mus) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51017

Titill: 
  • Hugmyndir að Hljóði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Lokaverkefnið mitt var í formi tónleika sem skiptust í tvo hluta. Í fyrri hlutanum voru flutt tvö verk þar sem unnið var með fyrirfram samið efni og framkvæmdar frjálsar hljóðbreytingar með gagnvirkri stýringu í gegnum höfuðljós. Þetta er gert með sérhönnuðu viðmóti sem ég nefndi Urðarmáni, en það var þróað haustið 2024 sem partur af lokaáfanga í tónsmíðum. Seinni hluti tónleikanna fól í sér lifandi flutning á hljóðum sem ég hafði hannað í Supercollider, þar sem stjórnborð og höfuðljós voru notuð til að móta og þróa efnið í rauntíma. Supercollider er forritnunarmál sem er sérstaklega hannað fyrir hljóðvinnslu í rauntíma og tilraunakennda tónsmíð. Það gerir notandanum kleift að hanna, móta og stjórna hljóði á einstakan og sveigjanlegan hátt, og hefur sérstaklega öfluga möguleika í flutning fyrir framan áhorfendur. Supercollider er hinsvegar mjög flókið og þungt umhverfi til að læra á og nota, og er það kannski bölvun frekar en blessun að möguleikarnir séu nánast endalausir.

Samþykkt: 
  • 19.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51017


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð-Baldur Snær Bachmann.pdf355,82 kBLokaður til...01.06.2035GreinargerðPDF
Tonleikar_Baldur.mp375,39 MBOpinnMPEG AudioSkoða/Opna