is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51201

Titill: 
  • Ég á tvær mömmur : viðmót til samkynhneigðra foreldra í leikskólum.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um viðmót til samkynhneigðra foreldra í leikskólum á Íslandi. Markmiðið er að rannsaka hvaða upplifun samkynhneigðir foreldrar hafa af samskiptum við leikskólastarfsfólk og hvernig viðmót þeir upplifa í sinn garð. Rannsóknarspurningin sem leitast er við að svara er: „Hvernig viðmót upplifa samkynhneigðir foreldrar í sinn garð "
    Fyrst er fjallað um bakgrunn samkynhneigðra foreldra og lagabreytingar sem áttu sér stað árið 2006, þegar samkynhneigðum var veittur réttur til að ættleiða börn og lesbískum pörum heimilað að leita tæknifrjóvgunar. Einnig er fjallað um traust milli foreldra og leikskólastarfsfólks, sem er grundvöllur farsæls samstarfs, og hvernig viðmót mótast.
    Til að svara rannsóknarspurningunni var framkvæmd lítil könnun meðal samkynhneigðra foreldra með börn á leikskólaaldri. Þátttakendur voru sjö talsins frá Hafnarfirði, Reykjavík og Norðurlandi. Þótt niðurstöður séu ekki alhæfandi vegna fárra þátttakenda, gefa þær mikilvæga innsýn í reynslu samkynhneigðra foreldra. Helstu niðurstöður sýna að foreldrar eru almennt ánægðir með viðmót starfsfólks, en benda á nokkra þætti sem mætti bæta. Eyðublöð eru oft hönnuð fyrir gagnkynhneigða foreldra (móður og föður) frekar en forráðamenn, viðburðir eins og feðra- og mæðrakaffi geta verið óþægilegir fyrir börn með tvo samkynja foreldra og fræðsla um fjölbreyttar fjölskyldugerðir mætti vera meiri.
    Niðurstaðan er að þótt viðmót til samkynhneigðra foreldra hafi batnað mikið á undanförnum árum, þá er enn rými til að gera betur. Foreldrunum fannst mikilvægt að leggja áherslu á það að ræða fjölbreyttar fjölskyldugerðir við börn til að vinna gegn fordómum og að aðlaga viðburði og skjöl leikskólans að öllum fjölskyldugerðum.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis examines attitudes towards same-sex parents in Icelandic preschools. The aim is to investigate the experiences same-sex parents have in their interactions with preschool staff and what kind of reception they encounter. The research question the thesis seeks to answer is: "What kind of attitudes do same-sex parents experience directed towards them?"
    The thesis begins by discussing the background of same-sex parents and the legal changes that took place in 2006, when same-sex couples were granted the right to adopt children and lesbian couples were permitted to seek assisted reproduction. It also discusses trust between parents and preschool staff, which is the foundation of successful cooperation, and how attitudes are formed.
    To answer the research question, a small survey was conducted among same-sex parents with preschool-aged children. There were seven participants from Hafnarfjörður, Reykjavík, and North Iceland. Although the results cannot be generalized due to the small number of participants, they provide important insight into the experiences of same-sex parents. The main findings show that parents are generally satisfied with staff attitudes, but point out several aspects that could be improved. Forms are often designed for heterosexual parents (mother and father) rather than guardians, events such as fathers' and mothers' coffee days can be uncomfortable for children with two same-sex parents, and education about diverse family structures could be more comprehensive.
    The conclusion is that although attitudes towards same-sex parents have improved significantly in recent years, there is still room for improvement. The parents emphasized the importance of discussing diverse family structures with children to combat prejudice and adapting preschool events and documents to accommodate all family structures.

Samþykkt: 
  • 19.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51201


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.ed. ritgerð- Margret Heba - Ég á tvær mömmur- aðalskjal.pdf524,39 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna