Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51208
Karoshi - Burn-out : comparison of the Japanese and Icelandic economic and work culture
Kulnun er að aukast í íslensku samfélagi en Japanskt samfélag hefur verið að takast á við þann vanda að fólk vinnur sig til dauða í því sem kallast karoshi síðan á tíunda áratugnum. Þessar þjóðir búa við svipaðar aðstæður eftir síðari heimsstyrjöldina. Þjóðirnar upplifðu báðar hernám Bandaríkjanna eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar og með hernáminu fylgdi hagvöxtur, Þegar hagkerfið hrundi áratugum síðar olli það alvarlegum vandamálum fyrir vinnandi fólk þjóðanna. Samdrátturinn sem báðar þjóðir bjuggu við setti aukið álag á starfsmenn sem þegar voru að vinna langar vinnuvikur. Hrun hagkerfisins í Japan gerðist á tíunda áratugnum sem leiddi til aukningar á karoshi en á Íslandi er kulnun frekar nýtt hugtak. Þjóðirnar hafa báðar gert miklar umbætur á vinnumarkaði til þess að reyna að ná tökum á þessari þróun og reyna að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þegar umræðan um þessi fyrirbæri er skoðuð sjáum við að sökin er oft lögð á launþegann frekar en að vinnuveitandinn taki á sig ábyrgð. Í þessari ritgerð verða löndin skoðuð og hvað það er sem hefur leitt til vandamála og farið yfir hver er munurinn á hagfræði þjóðanna tveggja og hvernig þjóðinar eru ólíkar á vinnumarkaði.
Burn-out is on the rise in Icelandic society but Japan has been dealing with people overworking themselves to death in what is known as karoshi since the 90s. These nations have similar post-World War II experience, the nations both saw the occupation of the US after the end of World War II and with that occupation came economic growth. When the economy collapsed decades later it brought serious issues for the working people of the nations. The recession both nations saw put extra stress on the workers that already were working long work weeks, for Japan this happened in the 90s and saw the rise of karoshi while for Iceland burn-out is a new term. The nations both have had labor reforms to try and get a hold of the bad work-life balance that is on the labor market for each nation. When the discussion of these phenomenon’s is being looked into we see that the blame is often put onto the worker rather than the employer taking on themselves for mismanaging. This thesis will compare what may have led to issues arise and go into what is the difference between the two nations economics and how they differ on labor.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| BA Verkefni. Arnar Leó Þórisson.pdf | 497,75 kB | Opinn | Skoða/Opna |