is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51238

Titill: 
  • Bókun 35 við EES-samninginn : hvaða áhrif hefur innleiðing hennar á íslenskan rétt og felur sú innleiðing í sér framsal á löggjafarvaldi?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um bókun 35 við EES-samninginn og þau áhrif sem innleiðing hennar kann að hafa í för með sér að íslenskum rétti, með áherslu á það hvort innleiðing hennar feli í sér framsal á löggjafarvaldi. Bókun 35 er einn liður í að ná fram meginmarkmiðum EES-samningsins um einsleitni sem jafnframt tryggir að einstaklingar og aðilar í atvinnurekstri fái notið þeirra réttinda sem samningurinn kveður á um. Í bókun 35 felst þjóðréttar skuldbinding sem felur í sér að aðildarríki samningsins skulu tryggja að EES-reglur njóti forgangs gagnvart innlendum reglum komi til ósamræmis á milli þeirra. Með bókun 35 er ríkjum þannig veitt svigrúm til að útfæra slíka reglu í landsrétti sínum eftir eigin höfði en með því fyrirkomulagi var ekki talið að í henni fælist framsal á löggjafarvaldi. Á Íslandi var sett regla í 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið og var ákvæðinu ætlað að fullnægja skuldbindingu bókunar 35 hér á landi. Ákvæðinu hefur þó ekki tekist að tryggja forgang EES-reglna líkt og bókun 35 gerir ráð fyrir, sem leitt hefur til þess að einstaklingar og aðilar í atvinnurekstri hafa í ákveðnum tilfellum ekki geta notið að fullu þeirra réttinda sem EES-samningurinn áskilur. Þrátt fyrir það hefur því verið haldið fram að bókun 35 feli í sér framsal á löggjafarvaldi. Niðurstöður ritgerðarinnar benda hins vegar til þess að svo sé ekki.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis examines Protocol 35 of the EEA Agreement and the effects its implementation may have on the Icelandic legal system, with an emphasis on whether its implementation entails a transfer of legislative power. Protocol 35 of the agreement is one element in achieving the objective of homogeneity under the agreement, which also ensures that individuals and economic operators enjoy the rights provided for in the agreement. Protocol 35 contains an obligation that requires the contracting parties to ensure that EEA rules enjoy primacy over national rules in the event of inconsistency between the two. Protocol 35 provides freedom for states to implement such a rule in a way that is preferred, this arrangement was not considered to involve a transfer of legislative power. In Iceland, a rule was set in Article 3 of Act No. 2/1993 on the European Economic Area, which was intended to fulfill the obligation of Protocol 35 of the EEA Agreement. However, the provision has not succeeded in ensuring primacy of EEA rules in accordance with Protocol 35, which has led to individuals and economic operators in certain cases being unable to fully enjoy the rights granted by the EEA Agreement. It has however, been argued that Protocol 35 involves a transfer of legislative power. The findings of this thesis suggest that this is not the case.

Samþykkt: 
  • 19.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51238


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bókun 35 ritgerð.pdf855,59 kBOpinnPDFSkoða/Opna