is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51264

Titill: 
  • Við getum ekki án þessa starfsfólks verið : reynsla, upplifun og áskoranir hjúkrunardeildarstjóra á hjúkrunarheimilum af erlendu starfsfólki í umönnunarstörfum.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Talsverð aukning hefur verið á erlendu starfsfólki í umönnunarstörfum á hjúkrunarheimilum undanfarin ár samhliða fjölgun þjóðerna. Nýjar áskoranir felast í því að ráða erlent starfsfólk í slík störf þar sem ólíkir siðir og menning mætast. Tilgangur: Tilgangur rannsóknar var að kanna áskoranir, upplifanir og reynslu hjúkrunardeildarstjóra á hjúkrunarheimilum af því að ráða erlent starfsfólk í umönnunarstörf. Aðferð: Rannsóknarsniðið var eigindlegt. Stuðst var við aðferð Vancouverskólans í fyrirbærafræði. Tilgangsúrtak var notað þar sem skilyrði fyrir þátttöku voru að vera starfandi hjúkrunardeildarstjóri á hjúkrunarheimili. Gagnaöflun átti sér stað með 11 viðtölum við átta hjúkrunardeildarstjóra á átta mismunandi hjúkrunarheimilum. Niðurstöður: Áskoranir hjúkrunardeildarstjóra eru fjölþættar þegar kemur að erlendu starfsfólki í umönnunarstörfum. Eftir því sem tungumálakunnátta þeirra er minni, því fleiri eru áskoranirnar. Ráðningar- og móttökuferlið er umfangsmeira og flóknara en ef um íslenskt starfsfólk er að ræða. Samskiptavandamál og menningarárekstrar eru einnig áskoranir fyrir stjórnendur. Þörf er á fræðslu í menningarlæsi fyrir stjórnendur. Upplifun og reynsla þeirra af því að vera með erlent starfsfólk í umönnunarstarfi er þó almennt jákvæð. Þrátt fyrir umfangsmeira verkefni og fleiri áskoranir í upphafi ráðninga þá skilar það sér í verðmætum mannauði sem býr yfir miklu vinnusiðferði og sinnir íbúum af alúð.
    Ályktun: Niðurstöður benda til þess að það sé umfangsmeira verkefni að ráða erlent starfsfólk til starfa í umönnunarstörf, að minnsta kosti fyrst um sinn. Það krefst meiri tíma af stjórnendum, því hafa þarf í huga góða móttöku og aukna eftirfylgni til að tryggja vellíðan þeirra á vinnustað. Ef vel er staðið að þessum málum skilar það sér í fyrirmyndar starfsfólki í flestum tilfellum. Gott væri að efla stjórnendur með aukinni fræðslu tengdu menningarlæsi og einnig hafa rannsóknir sýnt að samskiptasáttmálar á fjölþjóðlegum vinnustöðum geta stuðlað að færri samskiptaörðuleikum þar sem ólíkir menningarheimar mætast.

  • Útdráttur er á ensku

    BBackground: There has been a considerable increase in foreign staff working in caregiving roles at nursing homes in recent years, alongside a rise in the number of nationalities represented. New challenges have emerged in hiring foreign staff for such roles, as different customs and cultures come together. Purpose: The purpose of the study was to explore the challenges, experiences, and perceptions of nursing department managers at nursing homes regarding the hiring of foreign staff in caregiving roles. Method: The study followed a qualitative design, using the Vancouver School of Phenomenology methodology. Purposeful sampling was used, where the requirement for participation was to be a currently practicing nursing department manager at a nursing home. Data was collected through 11 interviews with eight nursing department managers from eight different nursing homes. Results: The challenges faced by nursing department managers regarding foreign staff in caregiving roles are multifaceted. The fewer language skills the staff have, the greater the challenges. The recruitment and onboarding processes are more extensive and complex compared to hiring Icelandic staff. Communication issues and cultural clashes also present challenges for managers. There is a need for training in cultural literacy for leaders. However, their overall experience with foreign staff in caregiving roles is generally positive. Despite the more involved process and initial challenges in recruitment, it results in a valuable workforce that possesses a strong work ethic and provides compassionate care to residents. Conclusion: The findings suggest that hiring foreign staff for caregiving positions is a more extensive task, at least initially. It requires more time from managers, making good onboarding and increased follow-up essential to ensure staff well-being in the workplace. If done well, it typically results in exemplary employees. It would be beneficial to support managers with increased education in cultural literacy. Additionally, research has shown that communication agreements in multicultural workplaces can help reduce communication difficulties where different cultural backgrounds meet.

Samþykkt: 
  • 19.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51264


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Við getum ekki án þessa starfsfólks verið. AMB.pdf773,33 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna