Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51267
Tilgangur: Sýnt hefur verið fram á að hreyfing og líkamsþjálfun hefur forvarnargildi hvað varðar hreysti og góða heilsu og er tilgangur þessarar rannsóknar að afla þekkingar og dýpka skilning á reynslu og upplifun eldri borgara af þátttöku í námskeiðinu Heilsuþjálfun 65+ m.t.t. líkamlegra, andlegra og félagslegra þátta. Að fá fram hvað eru góð lífsgæði í huga þátttakenda og hvort þátttaka í þjálfuninni hafi áhrif á hvernig viðkomandi metur lífsgæði sín.
Aðferð: Notast var við eigindlega aðferðafræði og var stuðst við Vancouver-skólann í fyrirbærafræði. Tekin voru viðtöl við átta þátttakendur í námskeiðinu Heilsuþjálfun 65+ sem er alhliða líkams- og félagsþjálfun fyrir einstaklinga 65 ára og eldri. Fimm konur og þrír karlar á aldrinum 68-84 ára tóku þátt í rannsókninni.
Niðurstöður: Meginniðurstöður rannsóknarinnar voru að þjálfunin hefur jákvæð áhrif á líkamlega, andlega og félagslega líðan þátttakenda. Með því að taka þátt í námskeiðinu fundu þau fyrir jákvæðum áhrifum á vöðvastyrk, líkamlegt þol og úthald. Einnig fundu þau jákvæð félagsleg og andleg áhrif tengt þátttöku sinni þar sem þau lýsa góðum og nærandi félagsskap og gleði. Hvað varðar lífsgæði þá voru þau þakklát fyrir góða heilsu en aðspurð hvort Heilsuþjálfun 65+ hefði haft áhrif á mat þeirra á lífsgæðum, töldu þau svo ekki vera.
Ályktun: Heilsuþjálfun 65+ hefur jákvæð áhrif á líkamlega, andlega og félagslega líðan og er liður í því í að viðhalda góðum lífsgæðum. Mikilvægt er að boðið sé uppá námskeið sem þessi fyrir þennan aldurshóp til að bæta líðan og lífsgæði aldraðra, auk þess að draga úr hættu á sjúkdómum og fylgikvillum öldrunar.
Lykilorð: Líkamsþjálfun, eldri borgarar, lífsgæði, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði
Aim: It has been demonstrated that exercise and physical training have preventive value by slowing down the effects and symptoms of aging on both mental and physical aspects. To gain knowledge and deepen understanding of the experience of older adults participating in the Health Training 65+ course concerning physical, mental, and social factors. To discover what constitutes a good quality of life in participants' minds and whether participation in the training affects how they assess their quality of life?
Method: A qualitative methodology was used, based on the Vancouver- School of Phenomenology. Interviews were conducted with eight participants in the course. Five women and three men aged 68-84 years.
Results: The study's main findings were that Health Training 65+ positively affects participants' physical, mental, and social well-being. By participating in the course, they experienced positive effects on muscle strength, physical endurance, and stamina. They also found positive social and mental effects related to their participation, describing good, nurturing companionship and joy. Regarding quality of life, health was on the participants' minds, but when asked whether Health Training 65+ had affected their quality of life assessment, they did not think so.
Conclusion: Health Training 65+ positively affects physical, mental, and social well-being and contributes to maintaining a good quality of life. Courses like that must be available to improve well-being and quality of life and reduce the risk of diseases and complications associated with aging.
Keywords: Physical training, elderly, quality of life, Vancouver School of Phenomenology
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Þetta hefur áhrif_skemman_akg.pdf | 1,41 MB | Lokaður til...31.05.2028 | Heildartexti |