Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51268
Bakgrunnur: Offita meðal barna hefur aukist, bæði á heimsvísu og á Íslandi. Í dag eru 7,8% grunnskólabarna á Íslandi með offitu, en hlutfallið er 10% á landsbyggðinni. Þrátt fyrir ráðleggingar um meðferð við offitu er slík þjónusta ekki í boði á landsbyggðinni. Eina þverfaglega úrræðið sem í boði er á Íslandi er í Reykjavík. Það er þörf á að byggja upp fyrstu línu þjónustu sem fer fram í heimabyggð barnanna.
Tilgangur rannsóknar: Markmið rannsóknarinnar var að kanna fýsileika þess að koma á fót lífstílsmeðferð fyrir börn með offitu og foreldra þeirra á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Rannsóknin skoðaði eftirspurn, hlutfall þeirra sem ljúka helmingi meðferðartímans, og mun á staðbundnum og fjarviðtölum með sömu breytum. Tilgangurinn var einnig að lýsa stöðu þessara barna með tilliti til lífsstílsþátta eins og svefni, mataræði, hreyfingu og líðan, sem og bakgrunni foreldra. Auk þess var skoðuð upplifun og ánægja foreldra og barna af meðferðinni. Að lokum var metinn kostnaður við að koma á fót slíkri móttöku.
Aðferð: Börn í 1., 4. og 7. bekk voru skimuð hjá skólahjúkrunarfræðingum í öllum grunnskólum á Suðurlandi. Börn með offitu og foreldrum þeirra voru boðin þátttaka í rannsókninni, sem fól í sér sex viðtöl við hjúkrunarfræðing og lækni. Rannsakandi framkvæmdi viðtöl eitt og þrjú. Spurningalistar um lífsstíl og líðan barnsins og bakgrunn foreldra voru sendir til foreldra í upphafi rannsóknarinnar. Eftir þriðja viðtalið svöruðu foreldrar spurningalista um upplifun þeirra af meðferðinni. Viðtölin fóru fram á öllum heilsugæslustöðvum innan HSU, en nokkrum stöðvum bauðst að fá viðtöl í gegnum fjarfundarbúnað.
Niðurstöður: Meðferðin reyndist fýsileg og framkvæmanleg. Eftirspurn var eftir meðferðinni. Fjarviðtöl reyndust vel. Foreldrar og börn voru ánægð með meðferðina, sem uppfyllti væntingar þeirra. Kostnaður við að setja á fót slíka meðferð er metinn vera um 92 þúsund krónur á hvert barn.
Ályktun: Fýsilegt og framkvæmanlegt er að bjóða upp á meðferð við offitu fyrir börn og foreldra þeirra á heilsugæslustöðvum HSU. Eftirspurn er til staðar og nauðsynlegir innviðir eru til staðar. Foreldrar og börn samþykkja meðferðina.
Lykilorð: offita barna, fýsileikarannsókn, heilsugæsla, íhlutun, lífsstíll, næring, hreyfing, skjátími, svefn, kvíði, sjálfsmynd.
Background: The prevalence of childhood obesity has risen globally and in Iceland. Currently, 7.8% of primary school children in Iceland are living with obesity, with the proportion rising to 10% in rural areas. Despite recommendations for obesity treatment, such services are unavailable in rural regions. The only interdisciplinary resource in Iceland is located in the capital, Reykjavík, highlighting the need to develop primary care services within children's home areas. Study Design: This study aimed to assess the feasibility of implementing a lifestyle treatment for children with obesity and their parents at primary health care clinics of the Health Care Institution of South Iceland (HSU). The objectives included evaluating demand, treatment completion rates after three months, and lifestyle factors such as sleep, diet, exercise, and wellbeing. Additionally, the study examined the experiences and satisfaction of parents and children with the treatment, comparing on-site and remote interviews, and estimated the cost of establishing such a program. Method: School nurses measured the height and weight of children in 1st, 4th, and 7th grades across all primary schools in South Iceland. Children with obesity and their parents were invited to participate in the study, which involved six interviews with a nurse and a doctor. The researcher conducted the first and third interviews. Parents completed questionnaires on their child's lifestyle and well-being, as well as their own background, at the study's outset. Following the third interview, parents provided feedback on their treatment experience. Interviews were conducted at all HSU primary health care centers, with some centers offering remote interviews via teleconferencing. Results: The treatment was feasible and met with demand. Remote interviews were successful, and parents and children expressed satisfaction with the treatment, which met their expectations. The estimated cost of establishing the treatment was approximately 92.000 ISK per child. Conclusion: The implementation of the lifestyle treatment for children with obesity and their parents at HSU primary health care centers was feasible. There is demand for the treatment, and the necessary infrastructure is in place. Parents and children accepted the treatment.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Kraftmiklir krakkar lokaútgafa.pdf | 1,42 MB | Lokaður til...30.05.2029 |