is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51269

Titill: 
  • Viðhorf foreldra til þjónustu heilbrigðis- og skólakerfis við leikskólabörn með hegðunar- og/eða tilfinningavanda
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Börn geta þurft að takast á við ýmsan vanda í barnæsku sem getur reynt á þau sjálf og fjölskyldu þeirra. Vandinn getur verið af ýmsum toga, allt frá því að vera vegna líkamlegra áskorana yfir í vanda er snýr að félagslegum- og/eða sálrænum þáttum, vandinn getur því verið vel sjáanlegur yfir í það eða vera dulinn eða lítið sýnilegur .
    Tilgangur: Að kanna viðhorf og reynslu foreldra leikskólabarna með hegðunar og/eða tilfinningavanda á þjónustu leikskóla- og heilbrigðiskerfis.
    Aðferð: Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn. Hannaður var spurningalisti sem sendur var út á Facebook. Spurningalistinn innihélt 36 spurningar, 10 spurningar sem snéru að bakgrunni barnsins, leikskólanum og nýjum Farsældarlögum barna (Farsæld barna), 19 spurningar um þjónustu við barnið og fjölskylduna tengdar hegðunar- og/eða tilfinningavanda, 6 bakgrunnsspurningar svarenda og 1 opin spurning í lokin. Þátttakendur voru sjálfvaldir og notuð var lýsandi tölfræði.
    Niðurstöður: 123 foreldrar svöruðu bakgrunnsupplýsingum barns og 115 foreldrar svöruðu spurningum um leikskóla barnsins og Farsæld barna. 58 foreldrar héldu áfram sem áttu börn með hegðunar- og/eða tilfinningavanda. Rúmlega 70% foreldra sögðu leikskóla barns síns ekki hafa kynnt Farsæld barna fyrir foreldrum og 80% foreldra var ekki kunnugt um hver tengiliður við Farsæld barna væri á leikskólanum. Margir foreldrar (63%) myndu vilja meiri þjónustu varðandi hegðunar- og/eða tilfinningavanda barns síns. Af þeim sem tóku skýra afstöðu voru fleiri foreldrar ánægð með ferlið innan skólakerfisins (62%) heldur en heilbrigðiskerfisins (46%). Varðandi samvinnu milli kerfa töldu 34% foreldra góða samvinnu milli kerfa og 66% litla eða enga samvinnu milli kerfa.
    Ályktanir: Mikilvægt er að veita börnum með hegðunar- og/eða tilfinningavanda og fjölskyldum þeirra þjónustu og öryggi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að tækifæri séu til staðar til að bæta þjónustu og utanumhald við barnafjölskyldur í þeim verkferlum sem skóla- og heilbrigðiskerfi veita tengdum hegðunar- og eða tilfinningavanda barna. Því fyrr sem gripið er inn í aðstæður og börnum veitt viðeigandi þjónusta er mun líklegra að barninu vegni betur í framtíðinni andlega, félagslega og námslega.
    Lykilorð: Heilsugæsla, Leikskóli, Tilfinningavandi, Hegðunarvandi, Þjónusta við fjölskyldu, Viðhorf foreldra, Reynsla, Snemmtæk íhlutun, Samvinna kerfa, Lýsandi þversniðsrannsókn, Spurningalisti.

  • Background: Children may have to deal with various problems in childhood that can be difficult for the children and their families. The problem can be of various kinds, from being due to physical challenges to problems related to social and/or psychological factors, the problem can therefore be clearly visible or be hidden or not very visible. Purpose: The study aims to explore parents opinion of support from the preschool and health care system for preschool children with behavioral and/or emotional problems and their families. Method: The study was a descriptive cross-sectional study. A questionnaire was designed and sent out on Facebook. The questionnaire contained 36 questions, 10 questions that concerned the child's background, preschool and Childrens prosperity, 19 questions about support to the child and the family, 6 background questions about the parent and 1 open-ended question at the end. Participants were self-selected and descriptive statistics were used. Results: 123 parents participated in the first part of the questionnaire which focused on the child‘s background, the preschool and Childrens prosperity. In question 10 parents were asked whether there had been any problems with behaviour and/or emotions and 58 parents continued who answered affirmatively. Over 70% of parents said that their child's preschool had not introduced Childrens prosperity to parents and 80% of parents were not aware of who the Coordinator of Childrens prosperity was at the preschool. Most parents (63%) would like more support regarding their child's behavioral and/or emotional problems. More parents were satisfied with the process in the school system (62%) than with the health care system (46%). Regarding collaboration between systems, 34% of parents considered good cooperation between systems and 66% considered little or no cooperation between systems.
    Conclusions: It is important to provide children with behavioral and/or emotional problems and their families with support and safety. The results of the study indicate that there are opportunities to improve support and management for families with children in the work processes that school and health care systems provide related to children's behavioral and/or emotional problems. The sooner the support is provided, it is much more likely that the child will do better in the future mentally, socially and academically.

Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 26.05.2026
Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51269


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BHR-Lokaskjal í skemmuna.pdf990,22 kBLokaður til...26.05.2026HeildartextiPDF