Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51270
Bakgrunnur: Lögreglan gegnir lykilhlutverki í verkefnum í krísuaðstæðum þar sem einstaklingar með geðrænar áskoranir eiga í hlut t.d. þegar einstaklingar upplifa alvarleg geðrofseinkenni, miklar skapbreytingar eða sýna ofbeldis- eða sjálfsskaðandi hegðun. Rannsóknir sýna að skortur á þekkingu og úrræðum getur hamlað viðeigandi viðbrögðum. Þessi vandi getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir bæði borgara og lögregluna og dregið úr trausti samfélagsins. Þverfagleg samvinna og markviss fræðsla hafa sýnt sig vera áhrifaríkar leiðir til að bæta þjónustu, auka öryggi og draga úr valdbeitingu.
Tilgangur: Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu og upplifun lögreglumanna á Íslandi af því að sinna verkefnum þar sem einstaklingar með geðrænar áskoranir koma við sögu. Áhersla var lögð á tilfinningaleg áhrif, samstarf við heilbrigðiskerfið og áskoranir í starfi.
Aðferð: Tekin voru tólf einstaklingsviðtöl við menntaða lögreglumenn með að minnsta kosti tveggja ára starfsreynslu, 5 konur og 7 karla frá 3 lögregluumdæmum. Notast var við fyrirbærafræði við greiningu gagna með áherslu á upplifanir og reynslu viðmælenda.
Niðurstöður: Niðurstöður leiddu í ljós að lögreglumenn töldu það krefjandi verkefni að sinna einstaklingum með geðrænar áskoranir, þar á meðal vegna núnings við heilbrigðiskerfið og skorts á viðeigandi úrræðum. Verkefnin höfðu tilfinningaleg áhrif á lögreglumennina, sem upplifðu meðal annars vonleysi og uppgjöf. Þeir töldu sig ekki hafa fengið næga þjálfun eða fræðslu um geðrænan vanda og hvernig best væri að nálgast einstaklinga með geðrænar áskoranir. Lögreglumönnum stendur til boða félagastuðningur og sálfræðiaðstoð, en þeir voru misduglegir að nýta þau úrræði.
Ályktun: Rannsóknin bendir til þess að bæta þurfi samstarf og samvinnu milli lögreglu og heilbrigðiskerfis, auka þjálfun og fræðslu fyrir lögreglumenn. Úrræði fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir þyrftu að vera fjölbreyttari og aðgengilegri. Mikilvægt er að hvetja lögreglumenn til þess sækja sér viðeigandi faglega aðstoð ef þörf er á.
Background: The police play a key role in responding to crisis situations involving individuals with mental health challenges e.g when individuals experience severe psychotic symptoms, intense mood swings, or display violent or self-harming behavior. Research indicates that a lack of knowledge and resources can hinder appropriate responses. These shortcomings may have serious consequences for both the individuals concerned and the police and may also erode public trust. Interdisciplinary collaboration and targeted training have proven to be effective in improving services, enhancing safety, and reducing the need for use of force. Purpose: The aim of this study was to explore the experiences and perceptions of police officers in Iceland when responding to incidents involving individuals with mental health challenges. Emphasis was placed on the emotional impact of these encounters, collaboration with the healthcare system, and occupational challenges. Methodology: Twelve individual interviews were conducted with trained police officers, five women and seven men, from three police jurisdictions, all with a minimum of two years of professional experience. A phenomenological approach was used to analyse the data, with a focus on the participants’ lived experiences and perceptions. Results: The findings revealed that officers perceived responding to individuals with mental health challenges as demanding, particularly due to friction with the healthcare system and the lack of appropriate interventions. These incidents had a clear emotional impact on officers, who reported feelings of hopelessness and resignation. The participants expressed that they had not received adequate training or education on mental health issues or on how best to approach individuals facing such challenges. Although psychological support and peer assistance were available, the degree to which officers utilized these services varied. Conclusion: The study suggests a need for improved collaboration between police and the healthcare system, as well as increased training and education for officers. Interventions for individuals with mental health challenges must be more varied and accessible. Furthermore, it is vital to encourage police officers to seek professional support when needed.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Reynsla lögreglumanna á Íslandi af vinnu með fólki með geðrænar áskoranir fix.pdf | 825,79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |