Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51271
Bakgrunnur: Að greinast með með krabbamein eykur líkurnar á sálrænum
erfiðleikum sem tengjast þunglyndi og kvíða. Seigla hefur verið skilgreind sem verndandi þáttur hjá þessum einstaklingum og ætti því efling seiglu að vera mikilvægur þáttur í meðferð og stuðningi.
Tilgangur rannsóknar: Kanna tengsl seiglu við sálræna líðan, þar á meðal þunglyndi, kvíða og streitu meðal einstaklinga sem greinst höfðu með krabbamein. Einnig var markmiðið að skoða áhrif bakgrunnsþátta á seiglu og sálræna líðan.
Aðferð: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn með hentugleikaúrtaki.
Spurningalistarnir DASS-21 sem mælir sálræna líðan og CD-RISC-25 sem mælir seiglu voru notaðir. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu sótt stuðning hjá stuðningssamtökum utan heilbrigðisstofnana. Tölfræðiforritið Jamovi var notað við gagnaúrvinnslu.
Niðurstöður: Alls svöruðu 374 þátttakendur spurningalistunum. Neikvæð marktæk fylgni var á milli seiglu og sálrænnar líðanar (p < 0,001). Íhugun um endurkomu sjúkdóms sýndi neikvæða marktæka fylgni við seiglu (p < 0,001) og aldur (p < 0,001) og jákvæða marktæka fylgni við sálræna líðan (p < 0,001), þunglyndi (p < 0,001), kvíða (p < 0,001) og streitu (p < 0,001). Giftir höfðu marktækt meiri seiglu (p = 0,006) og minni einkenni þunglyndis (p = 0,011) og streitu (p = 0,009) en þeir sem voru það ekki. Hærra menntunarstig tengdist aukinni seiglu (p < 0,001) og betri sálrænni líðan (p = 0,036). Marktækur munur kom fram á milli elsta aldurshópsins og yngri aldurshópanna á sálrænni líðan (p < 0,001). Sömu niðurstöður komu fram á milli eldri og yngri aldurshópa og greiningar sjúkdóms (p = 0,003). Þáttagreining CD-RISC-25 sýndi að listinn kom vel út í íslenskri þýðingu með Cronbach's alpha (α) á bilinu 0,634 til 0,897.
Ályktanir: Niðurstöður gefa vísbendingar um að seigla sé verndandi þáttur gegn sálrænum erfiðleikum hjá einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein. Bakgrunnsþættirnir hjúskaparstaða, menntun og aldur geta haft áhrif á seiglu og sálræna líðan þeirra.
Lykilorð: seigla, sálræn líðan, þunglyndi, kvíði, streita, krabbamein, stuðningur, íhugun um endurkomu, megindlegar rannsóknir.
Background: Being diagnosed with cancer increases the risk of psychological difficulties related to depression and anxiety. Resilience is considered a protective factor for these individuals, therefore enhancing resilience should be an important part of treatment and support.
Purpose: To examine the relationship between resilience and psychological well-being, including depression, anxiety, and stress, among individuals diagnosed with cancer. The study also aimed to explore the impact of background factors on resilience and psychological well-being.
Method: A quantitative, descriptive, cross-sectional study was conducted using a convenience sample. The DASS-21, measuring psychological well-being, and the CD-RISC-25, measuring resilience, were used. Participants had received support from support organizations outside the healthcare system. The statistical software Jamovi was used for data analysis.
Results: A total of 374 participants responded to the questionnaires. A negative significant correlation was found between resilience and psychological well-being (p < 0.001). Consideration of cancer recurrence showed a negative significant correlation with resilience (p < 0.001) and age (p < 0.001) and a positive significant correlation with psychological well-being (p < 0.001), depression (p < 0.001), anxiety (p < 0.001), and stress (p < 0.001).
Married individuals had significantly higher resilience (p = 0.006) and fewer symptoms of depression (p = 0.011) and stress (p = 0.009) than unmarried individuals. Higher education was associated with greater resilience (p < 0.001) and better psychological well-being (p = 0.036). A significant difference in psychological well-being was observed between the oldest and younger age groups (p < 0.001). Same results were found for age groups and disease diagnosis (p = 0.003). Factor analysis of the CD-RISC-25 showed the scale performed well in the Icelandic translation, showing Cronbach's alpha (α) from
0.634 – 0.897.
Conclusion: The results suggest that resilience is a protective factor against psychological difficulties in individuals diagnosed with cancer. Background factors such as marital status, education, and age may influence their resilience and psychological well-being.
Keywords: Resilience, psychological well-being, depression, anxiety, stress, cancer, support, consideration of cancer recurrence, quantitative research.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Meistaraverkefni_Lokaeinktak.pdf | 1,73 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |