is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51272

Titill: 
  • Frá áföllum í æsku til ofbeldis í nánu sambandi : tengsl sálrænna áfalla í æsku og að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi á fullorðinsárum
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Langvarandi og alvarleg streita í frumbernsku getur haft víðtæk áhrif á þroska, lífsgæði og öryggistilfinningu barna, auk langtímaafleiðinga sem vara fram á fullorðinsár. Rannsóknir sýna að reynsla af sálrænum áföllum í æsku eykur marktækt hættuna á að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi á fullorðinsárum. Tilgangur rannsóknar: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða tengsl sálrænna áfalla í æsku og að verða fyrir ofbeldi í nánum samböndum á fullorðinsárum í almennu íslensku þýði. Aðferð: Rannsóknin var lýsandi afturskyggn þversniðsrannsókn. Gagnaöflun fór fram með rafrænum spurningalista sem sendur var til 12.400 einstaklinga á aldrinum 18-80 ára árið 2021. Úrtakið var valið með slembiúrtaki úr hópi svarenda hjá gagnasöfnunarfyrirtækinu MASKÍNU (Þjóðargátt). Tíðni- og krosstöflur voru nýttar til að rannsaka breyturnar sálræn áföll í æsku og ofbeldi í nánu sambandi ásamt lýðfræðilegum breytum. Við vinnslu ályktunartölfræði var kí-kvaðratpróf notað til að kanna tengsl milli breyta og Spearman’s Rho fylgnistuðullinn var notaður til að kanna fylgni. Tölfræðiúrvinnsla var unnin í IBM SPSS Statistics, 29. útgáfu. Niðurstöður: Niðurstöður byggðust á svörum frá 5.557 þátttakendum, sem gaf svarhlutfallið 44,8%. Alls höfðu 17,7% þátttakenda orðið fyrir fjórum eða fleiri áföllum í æsku (≥4 ACE-stig), og var algengi hærra meðal kvenna (21,4%) en karla (12,6%). Niðurstöðurnar sýndu fram á marktæk tengsl milli sálrænna áfalla í æsku (≥4 ACE-stig) og að hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Jafnframt kom fram marktækur kynjamunur þar sem konur voru líklegri en karlar til að hafa reynslu af sálrænum áföllum í æsku (≥4 ACE-stig) og hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Ályktun: Sálræn áföll í æsku geta aukið hættu á að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi á fullorðinsárum. Niðurstöðurnar varpa jafnframt ljósi á kynjamun í útsetningu, þar sem konur virðast líklegri til að hafa orðið fyrir fjölþættum æskuáföllum og til að upplifa ofbeldi í nánum samböndum.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Prolonged and severe stress in early childhood can have wide-ranging effects on children’s development, quality of life, and sense of security, with long-term consequences extending into adulthood. Research shows that childhood psychological trauma significantly increases the risk of experiencing intimate partner violence in adulthood. Purpose: The purpose of this study was to examine the correlation between childhood psychological trauma and experiencing intimate partner violence in adulthood within a general Icelandic population. Method: This study employed a descriptive, retrospective, cross-sectional design. Data were collected in 2021 using an electronic questionnaire distributed to 12,400 individuals aged 18–80 years. The sample was selected through random sampling of respondents registered with the data collection company MASKINA (National Portal). Frequency and cross-tabulations were conducted to analyse the variables of adverse childhood experiences, intimate partner violence, and demographic factors. Inferential statistics included the chi-square test to assess relationships between variables and Spearman’s Rho to examine correlations. Statistical analysis was performed using IBM SPSS Statistics, version 29. Results: The study findings were based on responses from 5,557 participants, yielding a response rate of 44.8%. A total of 17.7% of respondents reported having experienced four or more adverse childhood experiences (≥4 ACE scores), with the prevalence higher among women (21.4%) compared to men (12.6%). The results revealed a significant correlation between psychological trauma in childhood (≥4 ACE scores) and experiencing intimate partner violence. Additionally, a significant gender difference was observed, with women being more likely than men to have experienced both psychological childhood trauma (≥4 ACE scores) and intimate partner violence. Conclusion: Psychological trauma in childhood may increase the risk of experiencing intimate partner violence in adulthood. The results also shed light on gender differences, as women appear to be more likely to have experienced multiple psychological childhood traumas and to experience violence in intimate partner relationships.

Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51272


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Edda Rún_Sverrisdóttir. pdf..pdf834,55 kBOpinnPDFSkoða/Opna