is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51273

Titill: 
  • Er þörf á skimun og meðhöndlun á andlegri vanlíðan feðra í Ung- og smábarnavernd á Íslandi?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Í flestum löndum líkt og á Íslandi eru feður hvorki skimaðir fyrir andlegri vanlíðan í barneignarferlinu né veittur forgangur í viðeigandi úrræði þegar þörf er á. Nýlegar rannsóknir hafa þó bent á mikilvægi þess að styðja betur við andlega líðan feðra í barneignarferlinu með skimunum og viðeigandi inngripum.
    Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna hvort þörf sé á breyttu verklagi innan Ung- og smábarnaverndar heilsugæslustöðva á Íslandi þar sem feður séu skimaðir fyrir andlegri vanlíðan og þeim veittur forgangur í viðeigandi úrræði þegar þörf er á.
    Aðferð: Notast var við samþætta heimildasamantekt (e. Integrative review). Gerð var kerfisbundin leit í gagnasöfnunum Scopus, PubMed, Web of Science og EBSCOhost. Leitarorðin voru meðal annars father, partner, mental distress, pregnancy, postpartum depression og health clinic, þá var einnig notast við samsvarandi leitarorð á íslensku. Leitarskilyrðin voru ritrýndar fræðigreinar á íslensku eða ensku, sem birtust á tímabilinu 2014-2024. Þátttakendur voru feður sem áttu von á heilbrigðum börnum sínum eða höfðu nýlega eignast fullburða börn sín sem þurftu ekki á sjúkrahúslegu að halda. Leitin var sett upp í PRISMA og voru 16 greinar sem uppfylltu fyrir fram ákveðin skilyrði.
    Niðurstöður: Rannsóknin sýnir fram á að andleg vanlíðan feðra í barneignarferlinu er vaxandi á heimsvísu, þar sem algengi fæðingarþunglyndis feðra mælist allt að 20,86%. Þessi þróun sýnir fram á að þörf sé á breyttu verklagi innan Ung- og smábarnaverndar á Íslandi þar sem skimun og forgangur í viðeigandi úrræði geta dregið úr alvarlegum afleiðingum þess fyrir heilsu og líðan feða, barna þeirra og maka þeirra.
    Ályktanir: Þar sem nýlegar rannsóknir benda til aukningar á andlegri vanlíðan feðra í barneignarferlinu er mikilvægt að þróa og innleiða skilvirk og hagkvæm inngrip sem styðja betur við andlega líðan feðra í barneignarferlinu.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: In most countries, such as Iceland, fathers are neither screened for mental health problems during the childbearing process nor given priority for appropriate treatment when needed. However, recent research has highlighted the importance of better supporting fathers' mental health during the childbearing process through screening and appropriate interventions.
    Aim: The purpose of the study was to investigate whether there is a need for changed procedures within Well-child care in health clinics in Iceland, where fathers are screened for mental health problems and given priority for appropriate treatment when needed.
    Method: An integrative review was used. A systematic search was conducted in the databases Scopus, PubMed, Web of Science and EBSCOhost. The search terms included father, partner, mental distress, pregnancy, postpartum depression and health clinic, with corresponding search terms in Icelandic. The search criteria were peer-reviewed articles in Icelandic or English, published between 2014 and 2024. Participants were fathers who were expecting healthy children or had recently given birth to full-term children who did not require hospitalization. The search was set up in PRISMA and 16 articles met certain criteria.
    Results: The study shows that the mental distress of fathers during the childbearing process is increasing globally, with the prevalence of postnatal depression in fathers measuring up to 20.86%. This trend demonstrates the need for a change in practice within Well-child care, as screening and prioritization of appropriate interventions can reduce the serious consequences for the health and well-being of fathers, their children and their partners.
    Conclusions: As recent research indicates an increase in fathers' mental distress during the childbearing process, it is important to develop and implement effective and cost-effective interventions that better support fathers' mental well-being during the childbearing process.

Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51273


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni 10.6 pdf form.pdf1,46 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna