is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/51274

Titill: 
  • Rifa er ekki það sama og rifa : reynsla íslenskra kvenna af 2° spangarrifa
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Inngangur: Allt að helmingur kvenna sem fæða barn um leggöng hljóta 2° spangarrifu, sem hefur hingað til verið talinn algengur og eðlilegur fylgikvilli slíkrar fæðingar. Nýlegar rannsóknir sýna fram á að 2° spangarrifur og fylgikvillar þeirra geti haft neikvæð áhrif á líkamlega og sálræna líðan kvenna eftir fæðingu. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna reynslu kvenna af þeim áhrifum sem 2° spangarrifa í fæðingu getur haft á líkamlega og sálræna líðan í kjölfar fæðingar, ásamt reynslu þeirra af þjónustu í tengslum við spangarrifur í gegnum barneignarferlið.
    Efniviður og aðferðir: Rannsóknin er fyrirbærafræðileg og unnin eftir aðferð Vancouver-skólans. Tekin voru alls 13 einstaklingsviðtöl við 12 konur sem höfðu hlotið 2° spangarrifu í fæðingu og voru viðtölin síðan þemagreind.
    Niðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar, Rifa er ekki það sama og rifa, lýsir því hversu ólík og krefjandi reynslan getur verið, hversu mikil áhrif spangarrifan getur haft á líkamlega og sálræna líðan og hversu mikla þörf konurnar hafa fyrir upplýsingar og stuðning frá ljósmæðrum og öðru heilbrigðisstarfsfólki. Alls voru greind fimm meginþemu: Hefði viljað vita meira; Enn eitt klofið að sauma; Verra en fæðingin; Vont að týna sjálfinu; og Valdaleysi og finnast maður ekki eiga kröfu um góða þjónustu. Nokkur undirþemu voru greind undir hverju meginþema.
    Ályktanir: Annarrar gráðu spangarrifur geta haft djúpstæð áhrif á líkamlega, sálræna og félagslega líðan kvenna, jafnvel til langs tíma. Konur vilja aukinn stuðning og fræðslu um spangarrifur frá heilbrigðisstarfsfólki í gegnum allt barneignarferlið og eftirfylgni með spangarrifu. Konur vilja einstaklingsmiðaða þjónustu og að tekið sé mark á líðan þeirra í tengslum við spangarrifuna.

  • Útdráttur er á ensku

    Introduction: Up to half of all women who give birth vaginally sustain a second-degree perineal tear, which is considered to be a common and normal complication of childbirth. Recent studies show that second-degree perineal tears and their complications can have a negative impact on women’s well-being. The aim of this study is to explore women’s experiences of the effects that a second-degree perineal tear can have on their psychological and physical well-being as well as their experiences of healthcare services related to perineal tears.
    Material and methods: This phenomenological study follows the Vancouver-School method. In total, 13 individual interviews were conducted with 12 women, who all had experienced a second-degree perineal tear at birth.
    Results: The key theme identified, A tear is not the same as a tear, describes the women’s diverse and challenging experiences of a second degree perineal tear, as well as how much it can affect the women’s physical and psychological well-being, and their needs for information and support from healthcare professionals. Five main themes were identified: I wish I had known more; Just another perineal suture; Worse than the birth itself; The loss of self; and Feeling powerless regarding the need for quality postnatal care. Furthermore, a few subthemes emerged from each main theme.
    Conclusion: Second degree perineal tears can have a profound impact on women‘s physical, psychological and social wellbeing, even in the longterm. Women would like more support and information related to perineal tears during the perinatal period as well as a follow-up of the perineal tear. Women want an individualized healthcare service and that their experience of the perineal-tear is acknowlegded by healthcare professionals.

Styrktaraðili: 
  • Ljósmæðrafélag Íslands.
Athugasemdir: 
  • Ritgerðin er lokuð til 17.06.2026
Samþykkt: 
  • 20.6.2025
URI: 
  • https://hdl.handle.net/1946/51274


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
GMB_RIFA_SKEMMA_25.pdf2,21 MBLokaður til...17.06.2026HeildartextiPDF
Efnisyfirlit.pdf95,13 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildir.pdf169,21 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna